Efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar rannsakar færslur tengdar Samherja
Norski bankinn DNB hefur sagt upp öllum viðskiptum sínum við Samherja. Þetta staðfesta heimildamenn tengdir bankanum við RÚV sem birti frétt um málið á vef sínum rétt í þessu. Ástæðan er sögð vera aðkoma Samherja í spillingarmálum í Namibíu.
Þá segir að eftir að Samherjaskjölin komu fram í dagsljósið hafi DNB gert innanhúss rannsóknir á málinu. Kjerstin Braathen, forstjóri DNB, sagðist líta það alvarlegum augum og útilokaði ekki að bankinn hafi verið misnotaður í samtali við RÚV. Fjármálaráðherra Noregs kallaði eftir því að bankinn legði öll spil á borðið.
,,Í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar um Samherjaskjölin kom meðal annars fram að Kýpur-félög Samherja hjá DNB bankanum hafi verið miðstöð reksturs Samherja erlendis og peningaflæði samstæðunnar verið stjórnað í gegnum eyjuna. Meðal annars hafi greiðslur, sem kallaðar hafa verið mútur, verið millifærðar frá Kýpur-félögum Samherja auk þess sem fé er flutt til félaga Samherja á Íslandi.
Norska ríkisútvarpið greinir frá því að efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar hafi hafið rannsókn á ákveðnum færslum tengdum Samherja.
Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherj, segir í samtali við fréttastofu að viðskiptum við norska bankann hafi verið hætt um áramótin. „Þetta hefur ekki truflað starfsemi Samherja á neinn hátt. Við vorum búin að vera í samskiptum við bankann í nokkurn tíma og frá því í nóvember hefur verið unnið að því að DNB yrði ekki hluti af okkar bankaviðskiptum,“ segir Björgólfur og bætir við að viðskiptin við DNB hafi verið orðin lítil þegar tengslin voru slitin. Hann segir þetta einstakt tilfelli og að viðskipti Samherja við aðra banka séu í óbreyttri mynd.“ Segir frétt RÚV.