Vissu þið þetta um veiðileyfagjöldin? Skoðum fimm punkta sem ég hef fundið út:
1. Veiðileyfagjöld síðasta árs dugðu ekki einu sinni fyrir þeim kostnaði sem hið opinbera verður fyrir við að þjónusta greinina.
2. Annar samanburður sem ég fann einnig út, var að veiðileyfagjaldið var þá orðið svipað hátt og útvarpsgjaldið og það var jafnvel orðið lægra en tóbaksgjaldið.
3. Stangveiðimenn greiddu hærri veiðileyfagjöld fyrir veiði sína í ám og vötnum heldur en stórútgerðin greiddi fyrir aðgang sinn að einum bestu sjávarauðlindum jarðar…sem þjóðin á samkvæmt lögum.
4. Krónutala veiðileyfagjalds hefur lækkað um 58% á þremur árum og sé litið á kjörtímabilið nemur lækkunin um þriðjung.
5. Veiðileyfagjöldin sem þjóðin (eigandi auðlindarinnar) fær, eru lægri en arðurinn sem rennur í prívat vasa útgerðarmannsins.
Hér er stuttur ræðubútur um þetta grundvallaratriði sem mér finnst skipta ansi miklu máli.
https://gamli.frettatiminn.is/11/02/2021/leigir-fra-ser-a-300-000-en-geidir-sjalf-16-000-kronur/