• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hótaði lögreglu að beita skotvopni – Hópslagsmál í miðborginni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. febrúar 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

99 mál hafa komið inn á borð lögreglu síðan 17.00. Átta einstaklingar eru nú vistaðir í fangaklefa. Nokkrar tilkynningar um ólæti og slagsmál hafa verið á borði lögreglu

  •  Lögreglustöð 1 Austurbær Vesturbær Miðborg Seltjarnarnes
  • Lögreglumenn almennu- og umferðadeildar standa vaktina í Hörpunni á 112- deginum.
  • Ökumaður blæs undir mörkum í hverfi 110, ökumanni gert að stöðva akstur en lögregla ók bifreið heim til ökumanns þar sem hann bjó stutt frá.
  • Ökumaður stöðvaður í hverfi 108 sem reyndist ekki vera vera með gild ökuréttindi, leyst með vettvangsskýrslu og ökumaður viðurkenndi brot sitt.
  • Lögregla hefur afskipti af einstakling sem grunaður var um þjófnað í hverfi 104, við öryggisleit fannst hnífur með 8 cm blaði og einstaklingurinn því einnig grunaður um vopnalagabrot.
  • Skotbómulyftara stolið frá fyrirtæki í hverfi 101 en fannst hann stuttu seinna skammt frá athafnarsvæði fyrirtækis. Enginn grunaður að svo stöddu og málið í rannsókn.
  • Umferðarslys í hverfi 103, mikið tjón á bifreiðunum tveimur og þær óökufærar en einnig skemmdist umferðarviti. Slys á fólki óþekkt að svo stöddu. Skýrsla rituð um málið.
  • Tilkynnt um ökumann sofandi undir stýri. Þegar lögregla kemur á vettvang sefur ökumaður í bílstjórasæti með fullan þunga á bensíngjöf með tilheyrandi látum. Illa gekk að ná sambandi við ökumann sökum ástands. Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, fluttur á stöð þar sem hann lét í té blóð- og þvagsýni. Laus að sýnatöku lokinni.
  • Ökumaður ekur gegn rauðu ljósi í hverfi 101. Rætt við ökumann í lögreglubifreið en í viðræðum fór lögreglumönnum að gruna að ökumaður væri undir áhrifum ávana- og eða fíkniefna. Tekið var munnvatnssýni á vettvangi sem gaf jákvæða niðurstöðu. Ökumaður handtekinn, færður á lögreglustöð þar sem dregið var úr honum blóð. Laus að sýnatöku lokinni.
  • Lögregla hefur afskipti af fjölmennri skemmtun á veitingastað í hverfi 110 þar sem aldur flestra gesta var undir 20 ára. Einstaklingar sinntu dyravörslu án tilskilinna réttinda og staðurinn ekki með tilskilin leyfi.
  • Tilkynnt um mikinn reyk og brunalykt úr fjölbýlishúsi í hverfi 107. Lögregla fer á vettvang og málið nú í rannsókn, grunur um íkveikju.
  • Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 101, handtekinn grunaður um ávana- og fíkniefnaakstur. Laus úr haldi lögreglu að sýnatöku lokinni.
  • Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 101, handtekinn grunaður um ávana- og fíkniefnaakstur. Ökumaður viðurkennir neyslu. Laus úr haldi lögreglu að sýnatöku lokinni.
  • Tilkynnt um slagsmál fyrir utan veitingastað í hverfi 101. Lögregla óskaði eftir sjúkraliði vegna áverka á árásarþola. Málið í rannsókn.
  • Tilkynnt um eld í hverfi 108, lögregla send á vettvang til að kanna málið. Tilkynnandi skoðar aðstæður og hefur samband við lögreglu og staðfestir að um ljóskastara hafi verið að ræða en ekki eld.
  • Tilkynnt um slagsmál í miðbæ. Lögregla fer á vettvang og málið í rannsókn.
  • Ökumaður hefur samband við lögreglu og tilkynnir líkamsárás þar sem tveir einstaklingar setjast inn í bifreiðina hjá honum án leyfis og hafi annar einstaklingurinn kýlt ökumanninn í andlitið. Gerendur sagðir flýja á fæti. Málið í rannsókn.
  • Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 101. Ökumaður réttindalaus og hann handtekinn grunaður um ávana- og fíkniefnaakstur. Ökumaður reyndist eftirlýstur og hann því vistaður í fangaklefa.
  • Tilkynnt um hópslagsmál á skemmtistað í miðborginni. Lögregla fer á vettvang, fær framburði frá vitnum og leitar að árásaraðilum.
  • Lögreglustöð 2 Hafnarfjörður Garðabær
  • Einstaklingur gengur berserksgang inni á athafnasvæði lögreglustöðvar 2. Lögreglumenn gefa sig á tal við viðkomandi sem sýnir ógnandi hegðun og hótar að beita skotvopni. Einstaklingurinn reyndist sem betur fer óvopnaður, var hann því yfirbugaður og vistaður í fangaklefa fyrir að hafa ekki hlýtt fyrirmælum og brotið lögreglusamþykkt Hafnafjarðar.
  • Einstaklingur áreitir gesti í samkvæmi, neitar að yfirgefa vettvang, fer ekki eftir fyrirmælum og með ógnandi tilburði gagnvart lögreglu. Einstaklingurinn handtekinn og fluttur á lögreglustöð 1 þar sem hann gisti fangaklefa.

Lögreglustöð 3 Kópavogur Breiðholt

  • Tilkynnt um innbrot í bifreið í hverfi 200. Verðmætum stolið úr bifreið. Skýrsla rituð og málið í rannsókn.
  • Tilkynnt um einstakling sem var óvelkominn og vildi húsráðandi losna við viðkomandi út af heimilinu. Lögregla fór á vettvang og vísaði viðkomandi út.
  • Tilkynnt um þjófnað og líkamsárás í fyrirtæki í hverfi 109. Tveir einstaklingar eru grunaðir um þjófnað en þegar starfsmaður reyndi að ná tali af þeim veittist annar þeirra að starfsmanninum og færði hann í hálstak. Vitni kom starfsmanninum til bjargar og aðstoðaði hann við það að losna úr hálstakinu. Gerendur
  • komust undan á fæti með vörurnar. Málið í rannsókn.
  • Tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi með hníf sem hann sýndi tilkynnanda. Tilkynnanda leist ekki á blikuna og lét sig hverfa frá staðnum en tók það samt fram að hinn tilkynnti hafi ekki verið ógnandi. Þegar lögregla kom á vettvang var hinn tilkynnti farinn af vettvangi.

Lögreglustöð 4 Grafarvogur Árbær Mosfellsbær

  • Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 112, handtekinn grunaður um ölvunar-, ávana- og fíkniefnaakstur. Laus úr haldi lögreglu að sýnatöku lokinni.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?