Karl Sigurbjörnsson, biskup, lést í morgun á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík, 77 ára að aldri
Karl fæddist 5. febrúar 1947 í Reykjavík, sonur Sigurbjörns Einarssonar, biskups og Magneu Þorkelsdóttur. Karl var sjötti í röð átta systkina.
Hann ólst upp í Reykjavík og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og síðar cand. theol frá Háskóla Íslands. Karl vígðist til prestþjónustu í Vestmannaeyjum 4. febrúar 1973 og var skipaður sóknarprestur í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík 1. janúar 1975 og þjónaði þar í tæp 23 ár.
Karl var kjörinn biskup Íslands árið 1997 og gegndi því embætti í 14 ár. Hann þjónaði eftir það um tíma í Dómkirkjuprestakalli. Karl var skipaður heiðursdoktor við Háskóla Íslands. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Þjóðkirkjuna, sat í stjórn Prestafélags Íslands, var kirkjuþingsmaður og í kirkjuráði áður en hann var kjörinn biskup Íslands. Eftir hann liggja fjölmargar bækur og rit, frumsamin og þýdd.
Eftirlifandi eiginkona hans er Kristín Þórdís Guðjónsdóttir. Börn þeirra eru Inga Rut gift Sigurði Arnarsyni, Rannveig Eva og Guðjón Davíð kvæntur Ingibjörgu Ýr Óskarsdóttur. Barnabörnin eru átta talsins.