• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Atvinnuvegaráðherra afhenti nýtt hafrannsóknaskip

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar við hlið Þórunnar Þórðardóttur HF 300.

Atvinnuvegaráðherra afhenti nýtt hafrannsóknaskip

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. mars 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra afhenti í dag nýtt hafrannsóknaskip, Þórunni Þórðardóttur HF 300, til Hafrannsóknastofnunar. Þorsteinn Sigurðsson forstjóri tók við skipinu fyrir hönd stofnunarinnar og blessaði sr. Laufey Brá Jónsdóttir skipið að því loknu.

Þórunn Þórðardóttir er 70 m langt og 13 m breitt stálskip, svokallað tvíorkuskip sem búið er rafknúnum skrúfum. Meginorkugjafi skipsins er olía en um borð eru einnig stórar rafhlöður sem gera alla orkunýtingu hagkvæmari og umhverfisvænni.

Þórunn Þórðardóttir við störf á Hafrannsóknastofnun.
Þórunn Þórðardóttir við störf á Hafrannsóknastofnun.

Skipið er nefnt eftir Þórunni Þórðardóttir (1925-2007), fyrstu íslensku konunni sem sótti sér sérfræðimenntun í hafrannsóknum. Þórunn var frumkvöðull í rannsóknum og vann nær allan sinn starfsaldur hjá sem deildarstjóri hjá Hafrannsóknastofnun. Eitt helsta afrek Þórunnar voru rannsóknir og mat á heildarfrumframleiðni svifþörunga á Íslandsmiðum en svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins. Þórunn var jafnframt á meðal fyrstu sjávarlíffræðinga til að nota geislakolsaðferð til að meta framleiðni í sjónum. Hún hlaut heiðursviðurkenningu Lýðveldissjóðs Alþingis fyrir framlag sitt til rannsókna á hafinu við Ísland.

Smíði skipsins fór fram í Astilleros Armon skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni. Þaðan var haldið úr höfn 25. febrúar sl. og lagst að bryggju í Hafnarfirði 8. mars. Frá upphafi var það markmið sett að skipið yrði eins vel útbúið og unnt væri til að sinna hafrannsóknum, bæði hvað varðar hönnun og tækni. Þórunn Þórðardóttir HF 300 leysir af Bjarna Sæmundsson HF 30 sem hefur þjónað sem hafrannsóknaskip frá 1970 en hefur nú verið selt til aðila í Noregi. Hið nýja skip hefur þegar verið bókað í sitt fyrsta verkefni og mun halda úr höfn innan fárra daga í svokallað marsrall eða stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum. Heildarkostnaður við smíði skipsins var um fimm milljarðar króna sem var innan fjárheimilda.

„Með öflugum rannsóknum getum við tryggt að ákvarðanir sem varða nýtingu auðlinda hafsins verði teknar á traustum vísindalegum grunni. Slíkar ákvarðanir eru ekki aðeins nauðsynlegar fyrir efnahagslega velferð þjóðarinnar, heldur einnig fyrir verndun líffræðilegrar fjölbreytni og sjálfbærni auðlindanna til framtíðar“ sagði atvinnuvegaráðherra í ræðu sinni. „Í þessu samhengi gegnir Hafrannsóknastofnun lykilhlutverki, þar sem þekking og ráðgjöf stofnunarinnar er grundvallarforsenda þess að við náum markmiðum okkar um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.“


Þórunn Þórðardóttir HF 300 á siglingu.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sigurður ákærður fyrir morð á dóttur sinni

    Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Vélhjólaslys

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?