• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 15. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sara Lind settur orkumálastjóri

Sara Lind Guðbergsdóttir

Sara Lind settur orkumálastjóri

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. apríl 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Halla Hrund Logadóttir hefur að eigin ósk tekið sér tímabundið leyfi frá embætti orkumálastjóra vegna framboðs síns til embættis forseta Íslands. 

Sara Lind Guðbergsdóttir

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur nú sett Söru Lind Guðbergsdóttur tímabundið í embætti orkumálastjóra fram til 2. júní. 2024. Sara Lind er lögfræðingur að mennt og með haldbæra reynslu af opinberum rekstri. Hún hefur m.a. starfað hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Ríkiskaupum, en nú síðast starfaði hún sem settur forstjóri Ríkiskaupa.

Söru Lind hefur verið falið að fylgja eftir verkefnum sem umhverfis-, orku og loftlagsráðuneytið setti af stað við greiningu á starfsemi  raforkueftirlits og átaksverkefni um meðferð og afgreiðslu umsókna leyfa til nýtingar auðlinda sem þegar liggja fyrir hjá Orkustofnun.

Tvö áhersluverkefni hjá settum orkumálastjóra

Í desember 2023 ákvað umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið að fela Bjarna Snæbirni Jónssyni stjórnunarráðgjafa að framkvæma endurmat á stöðu Orkustofnunar og byggja í því sambandi á úttekt á starfseminni sem hann gerði í lok árs 2020.

Úttektinni var ætlað að leitað svara við eftirfarandi spurningum:

  • Hver hefur þróunin verið í starfsemi Orkustofnunar síðustu 3 ár?
  • Hvernig hefur þróunin verið í einstökum starfsþáttum?
  • Er stofnunin í stakk búin að sinna öllum lögbundnum verkefnum sínum, auk annarra sem hafa fylgt áherslubreytingum stjórnvalda?
  • Hvaða áhrif getur sameining við Umhverfisstofnunar, að undanskildu náttúruverndarhluta stofnunarinnar, haft á rekstrarforsendur í einstökum málaflokkum?

Fyrir liggja drög að úttektarskýrslu á starfsemi Orkustofnunar sem nú er í rýni í ráðuneytinu en tvær af helstu niðurstöðum vinnunnar eru annars vegar að yfirfara þurfi rekstur og rekstrargrundvöll Raforkueftirlits og ganga úr skugga um hvort tekjur nægi fyrir útgjöldum og hins vegar að leysa tímabundinn afgreiðsluhalla leyfisumsókna vegna auðlindanýtingar.

Raforkueftirlit

Ráðuneytið hefur þegar sett af stað vinnu við að greina starfsemi raforkueftirlits en Orkustofnun hefur ekki unnið skýrslu fyrir ráðuneytið um starfsemi raforkueftirlits vegna áranna 2021-2023 og því liggja ekki fyrir nægjanlegar upplýsingar um framkvæmd eftirlitsins eða fjárhagslegan rekstur þess. Áhersla er lögð á að flýta þessari greiningu til að hægt sé að byggja á henni við ákvörðun um breytingu á raforkueftirlitsgjaldi í tengslum við vinnu við fjárlagafrumvarp 2025.

Afgreiðsluhalli leyfisumsókna vegna auðlindanýtingar

Ráðuneytið er nú að undirbúa sérstakt átaksverkefni um meðferð og afgreiðslu umsókna leyfa til nýtingar auðlinda sem þegar liggja fyrir hjá Orkustofnun.

Markmið verkefnisins er að vinna kerfisbundið að því að afgreiða allar umsóknir sem teljast vera afgreiðsluhæfar og koma á eðlilegu jafnvægi á afgreiðslu leyfa miðað við fyrirliggjandi umsóknir.

  • Fjöldi umsókna eftir leyfaflokkum og staða þeirra í afgreiðsluferli. Stöðumat sem innifelur m.a. hvar helst er að finna takmarkanir sem hafa áhrif á framgang verkefnisins.
  • Fjöldi umsókna sem teljast hæfar til umfjöllunar og afgreiðslu eftir flokkum.
  • Tímasett markmið um fækkun afgreiðsluhæfra umsókna, með það að markmiði að verkinu verði lokið í árslok 2024.
  • Mat á þeim aðföngum sem nauðsynleg eru til þess að ljúka verkinu í samræmi við markmið.  Mat skal innihalda bæði tegund aðfanga og kostnað.
  • Tímasett áætlun um hugsanlegar aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að skapa aðstæður þess að markmið náist.
  • Hugsanleg aðkoma annarra aðila að verkefninu utan Orkustofnunar ef við á.

Gert er ráð fyrir að verk hefjist eins fljótt og kostur er og að því verði fylgt eftir með reglulegu stöðuyfirliti frá Orkustofnun þar sem greint er frá framvindu og hvernig brugðist er við atvikum sem kunni að hafa áhrif á endanleg markmið.

Átaksverkefnið tengist heildstæðri úttekt og endurmati á ferli við leyfisveitingar og snýst um skilvirkni leyfisveitinga á sviði umhverfis- og orkumála með endurhönnun ferla, endurskoðun regluverks, stafrænum lausnum og breytingum á verklagi. Markmiðið er að einfalda og stytta vinnslutíma og tryggja um leið gæði og gagnsæi þessara ferla.

Söru Lind er falið að fylgja eftir ofangreindum tveimur verkefnum.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    108 deilingar
    Share 43 Tweet 27
  • Næsta lægð er væntanleg

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Landssamráðsfundur án samráðs – lögregla hunsar karlkyns þolendur ofbeldis

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?