• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 6. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Uppsetning öryggismyndavéla á Suðurlandi

ritstjorn by ritstjorn
12. maí 2018
in Óflokkað
0
Share on FacebookShare on Twitter

Að undanförnu hefur, í samstarfi Neyðarlínu og lögreglu, við ýmis sveitarfélög á Suðurlandi verið unnið að uppsetningu öryggismyndavéla sem tengdar eru beinlínutengingu við varðstofu lögreglunnar á Suðurlandi, á Selfossi, þar sem sólarhrings vakt er staðin. 


Fram til þessa hafa myndavélar í Árborg verið tengdar beint þar inn en nú munu að auki tengjast vélar frá Hvolsvelli, Hellu, Hveragerði, þar sem vélarnar hafa verið á lokuðum netþjón á bæjarskrifstofunum, og í undirbúningi er að setja upp vélar með sýn á Suðurstrandaveg og Þorlákshafnarveg við hringtorgið við Þorlákshöfn.  Fleiri sveitarfélög hafa sýnt verkefninu áhuga en reynslan sýnir að tilvist slíkra véla hefur umtalsvert forvarnargildi þegar að brotastarfsemi kemur.
Lögreglan á Suðurlandi leggur til netþjón sem vistar myndefnið og skráningarnúmer þeirra bifreiða sem fara hjá en þar sem settar eru upp nýjar vélar eru notaðar sérstakar vélar í númeralestur.   Lögregla hefur ein aðgang að því efni sem safnast með vöktuninni og er því sjálfkrafa eytt að liðnum ákveðnum tíma frá því mynd er tekin.  Með númeralestrinum mun lögregla geta leitað sérstaklega eftir því hvort eftirlýst ökutæki hafa farið um þar sem vöktunin á sér stað.  Neyðarlínan sér um gagnaflutninginn frá vélunum að lögreglustöð og hvert sveitarfélag um sig ber kostnað af kaupum og uppsetningu myndavélanna.

Með númeralestri opnast ýmsir möguleikar.  Þannig er nú til skoðunar hvort setja megi upp slíkar vélar beggja vegna við rýmingarsvæði í Öræfum sem myndi, ef þörf krefur, gefa greinargóðar upplýsingar um fjölda ökutækja inni á rýmingarsvæði og hvernig rýming gengur ef hún er sett í gang.  Þessi hugmynd kom upp þegar farið var að hugleiða hvernig væri unnt að fylgja eftir rýmingu á svæði þar sem flestir þeir sem þurfa að yfirgefa það eru ferðamenn.
Myndirnar hér með eru af myndavélamastri við Ytri Rangá þar sem þeir mættust, Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra og Oddur Árnason yfirlögregluþjónn.

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Gætuð þið lifað af á þessum launum? – Launaseðill sýnir útborguð laun

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?