• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samstaða innan Atlantshafsbandalagsins um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu

Samstaða innan Atlantshafsbandalagsins um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. júlí 2024
in Erlent, Fréttir
A A
0

Áframhaldandi og einarður stuðningur Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu var áréttaður á þriggja daga leiðtogafundi bandalagsins, sem lauk í Washington D.C. í Bandaríkjunum í dag. Bandalagsríkin ítrekuðu jafnframt mikilvægi þess að halda áfram að styrkja fælingar- og varnarstöðu sína samhliða því að efla samvinnu við helstu samstarfsríki til mæta nýjum áskorunum.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sóttu fundinn fyrir hönd Íslands.

Leiðtogarnir tóku þátt í afmælisviðburði í Mellon Auditorium á þriðjudaginn, þar sem Atlantshafssáttmálinn var undirritaður fyrir 75 árum af tólf ríkjum, þ.á.m. Íslandi. Bjarni Benediktsson, þáverandi utanríkisráðherra, skrifaði undir sáttmálann fyrir hönd Íslands í apríl árið 1949 en í dag eru aðildarríkin 32 talsins. Finnland og Svíþjóð eru nýjustu bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins og var þetta fyrsti leiðtogafundur Svíþjóðar sem fullgilt aðildarríki.

„Atlantshafsbandalagið er öflugra en nokkru sinni, og mikil tímamót að Norðurlöndin séu nú öll sameinuð undir merkjum þess. Styrkur okkar felst í að allir leggi sitt af mörkum, en bandalagsríkin hafa stóreflt varnargetu sína og viðhaldið öflugum stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu. Það er enda skylda friðsamra þjóða að standa saman um að verja frið, frelsi og öryggi í okkar heimshluta þegar að þeim gildum er ráðist,“ segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. „Við Íslendingar gegnum mikilvægu hlutverki í starfsemi bandalagsins á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, m.a. með loftrýmiseftirliti og gistiríkjastuðningi, m.a. við kafbátaleit og loftrýmisgæslu. Við höfum stóraukið framlög okkar til málaflokksins undanfarinn áratug og við ætlum að halda því áfram.“ 

Á fundinum var festur í sessi langtímastuðningur Atlantshafsbandalagsins við Úkraínu, sem felst í samræmingu á hergagnaaðstoð, þjálfun og fjárhagslegri skuldbindingu vegna varnartengdrar aðstoðar. Gert er ráð fyrir að bandalagsríkin verji að lágmarki 40 milljörðum evra til varnarstuðnings Úkraínu á komandi ári. Þá ítrekuðu leiðtogarnir að vegferð Úkraínu í átt að aðild að Atlantshafsbandalaginu yrði framhaldið.

,,Það er ekki hægt að horfa framhjá því að öryggisástandið í Evrópu kallar á auknar varnir og viðbúnað og hefur bandalagið sannarlega brugðist við því. Veigamikill þáttur í að tryggja öryggi bandalagsins felst í getu okkar til að veita Úkraínu nauðsynlegan stuðning. Því skiptir mestu máli að þétt samstaða hafi náðst um að efla öryggisaðstoð við Úkraínu og færa þau enn nær aðild að Atlantshafsbandalaginu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. „Almennt mátti svo greina áhyggjur meðal leiðtoganna af tíðni fjölþáttaaðgerða sem Rússland stundar grimmt og öllum ríkjum bandalagsins og samstarfsríkjum þess stendur ógn af.“ 

Rússland helsta ógnin við öryggi bandalagsríkja

Leiðtogarnir ítrekuðu að Rússland sé helsta ógnin við öryggi bandalagsríkja og fordæmdu vaxandi fjölþáttaaðgerðir af hálfu Rússlands, þ.m.t. skemmdar- og ofbeldisverk, ögrandi aðgerðir við landamæri bandalagsríkja og skaðlegar netárásir. Þá var samþykkt að ráðast í frekari aðgerðir til að bregðast við fjölþáttaógnum og að mótuð verði stefna gagnvart Rússlandi fyrir næsta leiðtogafund sem fram fer í Hollandi að ári. Þá vísuðu leiðtogar í óábyrgar og ógnandi yfirlýsingar Rússlands um kjarnavopn sem, ásamt viðvarandi brotum og sniðgöngu á alþjóðasamningum um afvopnun og eftirlit, grafi undan stöðu afvopnunarmála á alþjóðavísu.

Þá funduðu leiðtogar Atlantshafsbandalagsins og Indó-Kyrrahafsríkjanna, Ástralíu, Nýja-Sjálands, Japan og Suður-Kóreu, ásamt Evrópusambandinu. Þar voru samþykkt ný samstarfsverkefni tengd Úkraínu, netöryggismálum, fjölþáttaógnum og nýrri tækni. Samvinna við samstarfsríki bandalagsins á Indó-Kyrrahafssvæðinu hefur eflst til muna síðustu ár til að bregðast við sameiginlegum áskorunum. Umræðan undirstrikaði vaxandi tengsl milli öryggis Evró-Atlantshafssvæðisins og Indó-Kyrrahafssvæðisins og sameiginlega sýn ríkjanna í þessum málum á tímum þegar grafið er undan alþjóðalögum.

Á leiðtogafundinum var jafnframt ákveðið að auka samstarf bandalagsins við ríkin við suðurjaðar þess til að mæta öryggisáskorunum á svæðinu. Einnig var samþykkt ný stefna um konur, frið og öryggi sem miðar að því að styrkja enn frekar vægi kynjasjónarmiða í öllu starfi bandalagsins svo það verði betur í stakk búið til að takast á við nýjar áskoranir.

Í tengslum við fundinn undirrituðu varnarmálaráðherrar Norðurlandanna viljayfirlýsingu (e. Nordic Cross-Border Airspace Declaration), sem lýtur að því að greiða fyrir aðgengi bandalagsríkja að loftrými Norðurlandanna vegna aðgerða og æfinga.

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra tóku einnig þátt í fjölmörgum hliðarviðburðum og fundum á vegum bandalagsins sem og hugveitna sem haldnir voru samhliða leiðtogafundinum m.a. um öryggismál á norðurslóðum, norræna varnarsamvinnu, og konur, frið og öryggi.

Yfirlýsing leiðtogafundarins.

Yfirlýsing NATO-Úkraínuráðsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?