Brot 64 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, á móts við Árbæjarsafn.
Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 674 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.
Brot 74 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 9. ágúst til miðvikudagsins 11. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega tveimur sólarhringum fóru 8.572 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili og einn ökumaður var staðinn að því að nota farsíma án handfrjáls búnaðar.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.
Discussion about this post