• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fyrsta staðbundna neyslurýmið hefur verið opnað í Borgartúni

Fyrsta staðbundna neyslurýmið hefur verið opnað í Borgartúni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. ágúst 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ylja, fyrsta staðbundna neyslurýmið sem byggir á hugmyndafræði skaðaminnkunar hefur verið opnað í Borgartúni í Reykjavík. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir opnun þess marka tímamót í þjónustu við fólk sem glímir við fíknisjúkdóma.

Verkefnið er hluti af stefnumótun og aðgerðum stjórnvalda í skaðaminnkun sem unnið er að og kynntar verða á næstunni. Vonir standa til að tilkoma staðbundins neyslurýmis muni auka öryggi og draga úr alvarlegum afleiðingum vímuefnanotkunar í óöruggum aðstæðum s.s. sýkingum, smitsjúkdómum og ofskömmtun ásamt því að veita notendum þjónustunnar mikilvæga lágþröskulda heilbrigðisþjónustu, stuðning og ráðgjöf.

Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem einstaklingar með neysluvanda, 18 ára og eldri, geta notað vímuefni í öruggu umhverfi undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks. Hugmyndafræðin að baki felst í skaðaminnkun, þ.e. að draga úr skaðsemi vímuefnaneyslu, tryggja öryggi notenda og koma í veg fyrir dauðsföll. Notendur þurfa að útvega sér sín eigin efni en í neyslurýminu fá þeir meðal annars hreinan sprautubúnað, öruggt rými til að nota efnin. Í Ylju verður ávallt heilbrigðisstarfsfólk og sérhæfðir starfsmenn á vakt. Þar verður einnig veitt lágþröskuldaheilbrigðisþjónusta, s.s. meðhöndlun sára og sýkinga og unnt að taka blóðprufur til að greina smit s.s. lifrarbólgu, kynsjúkdóma eða HIV-smit.

Árið 2022 var ráðist í tilraunaverkefni til eins árs um færanlegt neyslurými með það að markmiði að meta þörfina fyrir staðbundið, varanlegt neyslurými hérlendis. Rauði krossinn á Íslandi (RKÍ) sá um reksturinn samkvæmt samningi velferðarsviðs Reykjavíkur, RKÍ og Sjúkratrygginga Íslands. Þjónustan var veitt í sérútbúinni bifreið sem áður var notuð af Frú Ragnheiði, sem er skaðaminnkunarverkefni RKÍ.

Tilraunaverkefnið frá árinu 2022 hefur staðfest þörfina fyrir neyslurými og ávinninginn af slíku skaðaminnkunarúrræði, jafnt fyrir hlutaðeigandi einstaklinga og samfélagið í heild. Aðstaðan í Borgartúni er sérsniðin fyrir þessa þjónustu, staðsetningin hentar vel hópnum sem á í hlut, aðstaða starfsfólks er góð og þeir sem þurfa á þjónustunni að halda geta gengið að henni vísri.

  • Ylja - Neyslurými - mynd úr myndasafni númer 1
  • Ylja - Neyslurými - mynd úr myndasafni númer 2
  • Ylja - Neyslurými - mynd úr myndasafni númer 3
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?