Alþýðusamband Íslands (ASÍ) ákvað að hætta viðskiptum við Íslandsbanka vegna þeirra lögbrota sem framin voru við sölu á hlutum ríkisins í fyrirtækinu í marsmánuði 2022. Ákvörðun þessi var samþykkt á fundi miðstjórnar ASÍ.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), átti fund með Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, og gerði honum grein fyrir ákvörðun miðstjórnar.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands:
„Afstaða miðstjórnar var alveg skýr á fundinum. Alvarleg lögbrot voru framin við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Framhjá slíkum trúnaðarbresti er ekki hægt að horfa og miðstjórn var einhuga um að slíta þessu viðskiptasambandi. Með þessu móti lætur Alþýðusambandið í ljós þá eindregnu afstöðu að ólöglegt fyrirkomulag sölu á hlutum í Íslandsbanka hafi verið ásetningur en ekki „mistök“. Nú hefur þessari afstöðu verið komið á framfæri við fólkið í landinu, stjórnmálamenn og stjórnendur fjármálafyrirtækja.”