• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Ef þú hefur tækifæri til að borga sjávarútvegsráðherra, þá skaltu borga honum strax!'' 

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. nóvember 2019
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

 

Samherji sagður hafa mútað ráðherrum

Sjávarútvegsráðherra Namibíu og Þorsteinn Már Baldvinsson á fundi á hótelherbergi

Jóhannes Stefánsson ásamt rannsóknaraðilum lýstu starfsemi Samherja í Kveik í kvöld og þar kom fram að stjarnfræðilegar meintar mútugreiðslur hafi átt sér stað.
Aðspurður um hvort hann muni eftir fyrstu meintu mútugreiðslunni, þá segir Jóhannes að hann muni hana vel. Þá hafi tengdasonur Sjávarútvegsráðherrans beðið um 60.000USD og hafi hann í kjölfarið hringt í sinn yfirmann hjá Samherja sem hafi svarað:  ,,Ef þú hefur tækifæri til að borga (múta) sjávarútvegsráðherra, þá skaltu borga honum strax!“  Þá fer Jóhannes yfir mörg mál og sýnir gögn sem hann segir vera mútugreiðslur til ráðamanna auk þess hafa Wikileaks, fréttaskýringaþátturinn Kveikur og katörsku sjónvarpsstöðina Al Jazeera og fleiri hafa rannsakað málin og eru enn að.   

5 ára fangelsi er fyrir að múta aðilum erlends ríkis

Jóhannes Stefánsson f.v. framkvæmdastjóri Samherja Namibíu : „Þetta er bara glæpastarfsemi. Þetta er bara skipulögð glæpastarfsemi.“ Segir Jóhannes Stefánsson

Því er haldið fram að Samherji hafi borgað mútugreiðslur upp á vel á annan milljarð fyrir velvild sjávarútvegsráðherra, dómsmálaráðherra og fleiri aðila í Namibíu til þess að fá fiskveiðikvóta í staðinn. Þá er því haldið fram að flóknar fléttur hafi verið gerðar til þess að fela slóðina m.a. með tilhæfulausum reikningum ofl. Stund­in segir að einn þeirra sem hafa þegið greiðslurn­ar frá Sam­herja sé James Hatuikulipi, stjórn­ar­formaður rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fis­hcor sem út­hlut­ar kvóta til út­gerðarfé­laga í land­inu. Jóhannes sagði að hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema án aðkomu Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, for­stjóra Sam­herja.
Frændi James og tengda­son­ur sjáv­ar­út­vegs­ráðherr­ans, Tam­son „Fitty“ Hatuikulipi, er einnig sagður hafa fengið greitt. Þriðji maður­inn er nú­ver­andi dóms­málaráðherra Namib­íu, Sacky Shangala, en hann var meðal ann­ars eig­andi að einu fyr­ir­tæki sem fékk greitt frá Sam­herja. Fjórði aðil­inn er Mike Ng­hip­unya, for­stjóri Fis­hcor.

Allt gert til að greiða enga skatta 

Fram kemur í málinu að stefna Samherja hafi verið að borga enga skatta eða sem allra minnst og lýst er hvernig peningar voru fluttir í skattaskjólseyjar m.a. á Kýpur. Rætt er við íbúa í Namibiu sem kvarta yfir slæmum aðbúnaði og að almenningur njóti þess ekki að verið sé að veiða hrikalega mikið magn af mjög verðmætum fiski úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar en ekkert af ávinningnum skili sér til þeirra. Hjá almenningi er bara eymd og volæði og engin von um betra líf þar sem samfélagið fái ekkert til samneyslunar.

Veiðigjöld

Fólkið býr í ónýtum hrörlegum kofum, án vatns og rafmangs. Innviðir njóta þess ekki að úti fyrir eru gjöful og fengsæl fiskimið. Börn fá ekki menntun og heilbrigðiskerfið er ónýtt vegna fjárskorts og fátæktin er hrikaleg. Þjóðin fær ekki að njóta leigu- eða auðlindagjalds fyrir afnot af auðlind þjóðarinnar en ráðamenn sagðir fá ríkulega borgað.
Þá er því haldið fram að Samherji hafi komið sér fram­hjá lögum um namibískt eign­ar­hald á kvóta með því að setja það sem kallað var „svart and­lit“ á eign­ar­hald þeirra fyr­ir­tækja sem fengu kvótann og svo gerðir baksamningar um raunverulegt eignarhald til Samherja.

 Samherji hagnast um 112 milljarða króna 

Samherji er sagður hafa hagnast um 112 milljarða króna á milli áranna 2011 og 2019 og að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri félagsins, hafi meðal annars byggt upp eignarhaldsfélag í kringum hlutabréfaeign sína í Samherja sem á 48 milljarða króna eignir og skuldar ekkert. Hluta þessa mikla hagnaðar má rekja til starfsemi Samherja í Afríku.  Að því er fram kemur í Stundinni.

Samherji ætlar að rannasaka sjálfa sig

Tengdasonur sjávarútvegsráðherrans, sjávarútvegsráðherra og dómsmálaráðherra eru sakaðir um að hafa þegið mútur

Namib­íska stofn­un­in ACC, sem rann­sak­ar spill­ingu, er með málið til rannsóknar og efna­hags­brota­deild­ lög­regl­unn­ar í Namibiu. Ang­ar máls­ins eru einnig til skoðunar í fleiri lönd­um, meðal ann­ars hjá norsku efna­hags­brota­deild­inni Ökokrim vegna gruns um pen­ingaþvætti inn­an sam­stæðu Sam­herja og hjá embætti héraðssak­sókn­ara hér á landi. Að því er kemur fram í Stundinni í dag.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Samherja, sem send var út í gær, áður en þátturinn Kveikur var sýndur, kemur fram að Samherji ætli að rannsaka sjálfa sig og ráða til þess norska aðila.
Þá vekur athygli að fyrirtækið ætlar ekki að svara fyrir ásakanirnar eins og kemur fram í tilkynningunni. Í yfirlýsingunni segir orðrétt ,,Við tökum þessu mjög alvarlega og höfum ráðið alþjóðlegu lögmannsstofuna Wikborg Rein í Noregi til að framkvæma ítarlega rannsókn á starfseminni í Afríku. Þar til niðurstöður þeirrar rannsóknar liggja fyrir munum við ekki tjá okkur um einstakar ásakanir.“

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja segist saklaus

Sjávarútvegsráðherra Namibíu og Þorsteinn Már Baldvinsson

„Öll starfsemi Samherja og tengdra félaga var undir ítarlegri rannsókn árum saman án þess að nokkuð athugavert hafi fundist. Var allt okkar bókhald, tölvupóstar og öll önnur gögn skoðuð ítarlega, þar með talið þeirra félaga sem sinntu útgerð við strendur Afríku frá árinu 2007. Við munum ekki nú, frekar en þá, sitja undir röngum og villandi ásökunum frá fyrrverandi starfsmanni sem enn á ný eru matreiddar af sömu aðilum og fjölmiðlum og í Seðlabankamálinu,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja í yfirlýsingu sinni. En hann hefur líkt þessu máli við „Seðlabankamálið“ svokallaða en þar lýsti hann einnig yfir sakleysi.
WikiLeaks hef­ur birt yfir þrjá­tíu þúsund skjöl frá Jó­hann­esi Stef­áns­syni, fyrr­ver­andi rekstr­ar­stjóra Sam­herja í Namib­íu og á eftir að birta 30.000 til viðbótar.

"Wikileaks documents pinpointed fisheries minister Benhard Esau, justice minister Sacky Shanghala and businessman James Hatuikulipi as masterminds of a Namibian fishing licence donated to the Angolan government but ended up benefiting a few individuals."https://t.co/wc4qXLGHCa pic.twitter.com/8B80HaBFJR

— WikiLeaks (@wikileaks) November 12, 2019


Namibískir ráðamenn á Akureyri í boði Samherja

https://gamli.frettatiminn.is/2019/11/12/samherji-sakadur-um-vafasaman-rekstur-i-namibiu-thetta-er-bara-glaepastarfsemi-thetta-er-bara-skipulogd-glaepastarfsemi/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?