Banaslys varð á Reykjanesbraut í gærkvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu Rúv, rákust tveir bílar saman sem komu úr gagnstæðri átt og lést einn maður í öðrum þeirra í árekstrinum. Aðrir munu ekki hafa slasast alvarlega.
Frekari upplýsingar um tildrög slyssins og umfang hefur fréttastofa ekki á þessari stundu en beðið er nánari upplýsinga frá lögreglu. Slysið varð laust fyrir klukkan hálftíu í gærkvöld og var Reykjanesbrautinni lokað á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar á meðan viðbragðsaðilar voru að athafna sig á vettvangi, eða fram undir miðnætti.
Umræða