Þetta er brot gegn kynferðislegri friðhelgi og fjárkúgun. Mikilvægt er að tilkynna slík brot til lögreglu í síma 112.
Lögreglan vekur athygli á myndbandi frá Europol sem fjallar stafrænt kynferðisofbeldi og fjárkúgun en þetta getur verið ein birtingarmynd af skipulagðri brotastarfsemi.
Brotið felur í sér að einstaklingar eru beðnir um að senda af sér nektarmynd/myndband í gegnum samfélagsmiðla. Yfirleitt eru þetta gerviaðgangar á samfélagsmiðlum og á bak við aðganginn eru einstaklingar sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Þegar búið er að senda nektarmyndina er hótað að birta og dreifa myndefninu áfram á netinu. Í flestum tilfellum er síðan gerð krafa um að viðkomandi borgi eða millifæri peninga inn á ákveðinn reikning.
Þetta er brot gegn kynferðislegri friðhelgi og fjárkúgun. Mikilvægt er að tilkynna slík brot til lögreglu í síma 112.
Góðar reglur í stafrænum heimi:
👉 Þegar talað er við ókunnuga á netinu er mikilvægt að að hafa í huga að mögulega er viðkomandi ekki sá sem hann segist vera.
👉 Ekki deila persónulegum upplýsingum eins og kortaupplýsingum, heimilisfangi og lykilorðum.
👉 Fullvissaðu þig um að friðhelgisstillingar þínar á samfélagsmiðlum séu þannig að ljósmyndir og aðrar upplýsingar séu ekki aðgengilegar öllum.
👉 Segðu frá ef þú verður fyrir broti.
👉 Á 112.is má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar, til dæmis má þar finna ráð um viðbrögð vegna stafrænna brota gegn börnum, fræðslu um ofbeldi, upplýsingar um úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota, velferð barna og almenn ráð um netöryggi.
Nánari upplýsingar hér:
www.europol.europa.eu/operations-services-and-innovation/public-awareness-and-prevention-guides/o…