Austan ofsaveður (Rautt ástand)
Rauð viðvörun vegna veðurs: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói og Suðausturland
Veðurhorfur á landinu
Vaxandi austanátt og þykknar upp, 13-23 m/s seint í kvöld, hvassast syðst á landinu og dálítil snjókoma þar. Frost 1 til 6 stig. Hægari vindur og kaldara norðaustanlands. Hvessir enn í nótt, rok eða ofsaveður 23-30 m/s með morgninum, en fárviðri (yfir 32 m/s) í vindstrengjum syðra. Víða slydda eða snjókoma á morgun, úrkomumest sunnan- og austanlands. Snýst í sunnan hvassviðri sunnantil landinu seinni partinn á morgun með rigningu á láglendi og hita 1 til 5 stig, en þá áfram rok og ofankoma um landið norðanvert. Lægir talsvert á landinu annað kvöld og dregur úr úrkomu. Spá gerð: 13.02.2020 15:37. Gildir til: 15.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Gengur í austan og norðaustan 15-23 m/s með rigningu eða slyddu, en snjókomu inn til landsins, úrkomumest austanlands. Hiti 0 til 6 stig.
Á sunnudag:
Norðaustan 8-15 m/s og dálítil slydda eða rigning SA-lands, en annars úrkomulítið. Gengur í norðan 10-18 um kvöldið með snjókomu norðanlands. Kólnar heldur í veðri.
Á mánudag:
Norðanátt og él, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Víða vægt frost.
Á þriðjudag:
Fremur hæg suðlæg átt með éljum, en léttir til á Norður og Austurlandi. Frost 0 til 8 stig, kaldast norðaustantil.
Á miðvikudag:
Vaxandi suðaustanátt með snjókomu eða slyddu sunnan- og vestanlands, en þurrt og kalt fyrir norðan og austan.
Spá gerð: 13.02.2020 08:26. Gildir til: 20.02.2020 12:00.
Hugleiðingar veðurfræðings
Það var kalt á landinu í nótt og mesta frostið mældist 23,5 stig við Mývatn og 22,9 stig á Grímsstöðum á Fjöllum.
Þegar þetta er skrifað er óveðurslægðin stödd 850 km austur af Nýfundnalandi. Þrýstingur í miðju hennar er nú áætlaður 952 hPa. Lægðin dýpkar ört og nálgast landið. Skammt norður af Scoresbysundi er 1014 mb hæð og spár gera ráð fyrir að hæðin standi kyrr þó lægðin nálgist. Í grófum dráttum má segja að það sé þrýstimunurinn milli þessara tveggja veðrakerfa sem veldur þeim aftaka vindi sem í vændum er.
Það bætir smám saman í vind í dag og í kvöld má búast við austan 10-23 m/s, hvassast syðst á landinu og snjókoma þar. Þá verður frost á bilinu 1 til 7 stig. Norðaustanlands verður hægur vindur í allan dag og kaldara.
Í nótt hvessir mikið og snemma í fyrramálið má víða búast við austan roki eða ofsaveðri, en jafnvel fárviðri í vindstrengjum á suðurhelmingi landsins. Víða er útlit fyrir slyddu eða snjókomu og verður úrkoman mest á sunnan- og austanverðu landinu.
Seinnipartinn á morgun snýst í sunnan hvassviðri sunnantil landinu með rigningu á láglendi þar sem hefur hlýnað vel uppfyrir frostmark. Þá verður hinsvegar áfram austan rok og ofankoma um landið norðanvert með hita nálægt frostmarki.
Annað kvöld batnar veður hinsvegar svo um munar á öllu landinu þegar vind lægir og dregur úr úrkomu. Undir miðnætti er útlit fyrir strekkingsvind um mestallt land sem væntanlega á eftir að virðast sem logn eftir það sem á undan er gengið.