• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Veiðigjald hækkar vegna hreindýraveiða

Hreindýrakvóti ársins 2026

Alls verður heimilt að veiða 936 hreindýr á veiðitímanum, 499 kýr og 437 tarfa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða, gjaldskrá veiðileyfa fyrir árið 2026 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Náttúruverndarstofnun.

Alls verður heimilt að veiða 936 hreindýr á veiðitímanum, 499 kýr og 437 tarfa. Um töluverða aukningu er að ræða miðað við árið í fyrra, en þá var veiðikvótinn 665 dýr. Sumarstofn hreindýra er í ár áætlaður um 5.000 dýr. Í fyrra var áætlaður sumarstofn um 4.000 dýr.

Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til 15. september. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. Á veiðisvæði 8 er heimilt að úthluta allt að 40 leyfum af kúaveiði frá 1. til 30. nóvember til þess að dreifa veiðiálagi á hjarðir á veiðisvæðinu.

Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.

Þá eru veturgamlir tarfar alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri.

Óheimilt er að veiða kálfa.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Líkt og fyrri ár skiptist veiðin milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Gjald fyrir úthlutun hreindýraveiðileyfis fyrir tarf er 241.600 kr. og 137.700 kr. fyrir kú.

Náttúruverndarstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Hreindýraveiðikvóti ársins 2026

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?