Þrír skiptu með sér 2. vinningi
Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld, en þrír skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 124 milljónir króna.
Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Danmörku og Ungverjalandi. Átta voru með 3. vinning og fær hver rúmlega 16 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Slóveníu, 2 í Danmörku og 4 í Þýskalandi
Einn var með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og fær hann 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn er í Áskrift
Umræða