• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ert þú með krabbamein? – Er eitthvað öðruvísi en venjulega?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. mars 2021
in Ferðaþjónusta, Innlent
A A
0

Dæmigerð einkenni

Krabbamein eru mörg og mismunandi, en það eru tiltekin einkenni sem við karlar þurfum að vera sérstaklega vakandi fyrir.

Ef þú þekkir og ert vakandi fyrir einkennum krabbameins geturðu frekar brugðist fljótt við. Því fyrr sem krabbamein greinist og hægt er að hefja meðferð því meiri líkur eru á bata.

Í stuttu máli ættir þú að vera vakandi fyrir því ef eitthvað við líkama þinn og starfsemi hans

  1. er öðruvísi en það er vant að vera,
  2. á sér ekki skýrar orsakir,
  3. er langvarandi.

Helstu einkenni sem þú ættir ekki að láta fara framhjá þér:

  • Óvenjuleg blæðing, til dæmis frá endaþarmi, í hægðum, þvagi eða hráka.
  • Þykkildi eða hnútar, til dæmis í pung, nára, handarkrika eða á tungu.
  • Óútskýrt þyngdartap
  • Þrálátur hósti eða hæsi
  • Langvarandi kyngingarerfiðleikar
  • Sár sem ekki gróa til dæmis í munni eða á kynfærum.
  • Breytingar á hægðum eða þvaglátum, til dæmis langvarandi niðurgangur eða hægðatregða, blóð í hægðum , erfiðleikar við að pissa.
  • Nýir fæðingarblettir eða breytingar á blettum, til dæmis stærð, lögun eða litur.
  • Langvarandi óþægindi frá meltingarvegi, til dæmis magaverkir eða uppþemba.
  • Óvenjuleg þreyta sem ekki minnkar við hvíld
  • Viðvarandi verkir án þess að orsök sé ljós

Hafðu samt í huga að þó einkennin gætu stafað af krabbameini geta þau einnig átt sér aðrar skýringar.

Fagfólk Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins býður ráðgjöf, stuðning og hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Einnig geta þeir sem hafa spurningar eða grun um krabbamein haft samband. Síminn er opinn alla virka daga: 800 4040 og hægt er að senda tölvupóst á netfangið radgjof@krabb.is. Þjónustan er fólki að kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga.

Lestu meira:

  • Nánar um helstu einkenni á vef Krabbameinsfélagsins

Karlaklefinn

Umræða
Share30Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    124 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    56 deilingar
    Share 39 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?