Grænlendingar hafa valið hinn borgaralega Demókratiit með 29.9% atkvæða og usa-flokkinn Naleraq með 24.5% atkvæða. Demokratiit þrefaldaði fylgi úr 9.25% og Naleraq tvöfaldaði fylgi sitt. Grænlendingar vísuðu vinstri flokkunum á dyr; Inuit með sjö þingmenn, missti 5 þingsæti og Siumut með fjögur þingsæti missti sex sæti. Lygaveitan okkar sagði að gott gengi siurvegaranna yrði góða fólkinu áfall en skoðanakannanir kváðu „bara“ sex prósent vilja aðild að USA.
DANIR EIGA EKKERT ERINDI Í VESTURHEIMI

Það sem er ljóst er að Grænlendingar eru að segja Dönum upp vistinni. Grænlendingar eiga tvo kosti, báða góða fyrir okkur Íslendinga. Annars vegar að Grænland lýsi yfir sjálfstæði og hins vegar ganga í USA þannig að Íslendingar eigi landamæri með Bandaríkjunum. Hvoru tveggja myndi gerbreyta stöðu Íslands á mörkum gamla og nýja heimsins. Grænland er þegar allt kemur til alls í Vesturheimi þar sem Danir eiga ekkert erindi.
DÖNSK NÝLENDUKÚGUN
Grænlendingar hafa fengið sig fullsadda af danskri nýlendukúgun. “Lykkjumálið“ situr í þjóðinni. Dönum fannst of margar grænlenskar unglingsstúlkur eiga börn. Lykkju var komið fyrir í fjögur þúsund og fimm hundruð unglingsstúlkum á sjöunda áratugnum. Inúitar sumsé voru of margir.

Ný kvikmynd sýnir að Danir hafa grætt Dkr. 400 milljarða á námagreftri á Grænlandi á 130 árum tímabili; 1857-1987. Heimildamynd “Hið hvíta gull Grænlands“ varpar ljósi á hvernig Danir högnuðust á greftri kríolíts nálægt Arsuuk skammt frá Hvarfi syðsta odda Grænlands. Í íslenskum krónum eru þetta IsKr. 7.900.000.000.000.-, sjöþúsund&níuhundruð milljarðar.
