Brot 60 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 11. apríl til fimmtudagsins 13. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 12.894 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 48 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í vesturátt, við álverið í Straumsvík. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 657 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.
Umræða