• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 21. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fjórar lögreglubifreiðar eru skemmdar eftir eftirför í austurborginni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. júní 2018
in Óflokkað
A A
0

Fjórar lögreglubifreiðar eru skemmdar eftir eftirför í austurborginni um kvöldmatarleytið, en upphaf málsins var að lögreglan hugðist stöðva för ökumanns á númerslausri bifreið á Víkurvegi í Grafarvogi um kl. 19.
Sá sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók á brott á miklum hraða. Honum var fylgt eftir af lögreglu og að endingu stöðvaður í Mjóddinni þar sem lögreglubifreiðum var ekið í veg fyrir bíl mannsins.
Ökumaðurinn, sem er 17 ára, var einn í bílnum, en hann var í kjölfarið fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Talið er að meiðsli hans séu minni háttar. Ekki er ljóst hvað hinum unga ökumanni gekk til, en hans bíður nú yfirheyrsla hjá lögreglu.  Tvær lögreglubifreiðanna eru óökuhæfar eftir eftirförina og sama á við um bíl piltsins.

Karlmaður um fertugt var síðdegis í gær í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umferðarslysi á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærmorgun.

Talið er að glæfralegu aksturslagi mannsins sé um að kenna, en tíu bílar skemmdust í slysinu og var ökumaður eins þeirra fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Maðurinn, sem er í haldi lögreglu, ók svartri Suzuki Swift bifreið, en nokkrar tilkynningar um háskalegt aksturslag hans bárust lögreglu skömmu fyrir slysið.

Minnt er á að lögreglan óskar eftir upplýsingum um bifreiðina, en þar er átt við myndskeið af ferð bílsins á Reykjanesbraut í aðdragana slyssins ef einhver kann að hafa slíkt undir höndum.

Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið rosa@lrh.is eða í síma 444 1000. Einnig er tekið við ábendingum í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu embættisins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Viðvörun: Djúp lægð með hvassviðri, stormi og éljagangi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Báknið minnkað: Starfleyfisskyldu létt af sextán flokkum atvinnurekstrar

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?