Fjórar lögreglubifreiðar eru skemmdar eftir eftirför í austurborginni um kvöldmatarleytið, en upphaf málsins var að lögreglan hugðist stöðva för ökumanns á númerslausri bifreið á Víkurvegi í Grafarvogi um kl. 19.
Sá sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók á brott á miklum hraða. Honum var fylgt eftir af lögreglu og að endingu stöðvaður í Mjóddinni þar sem lögreglubifreiðum var ekið í veg fyrir bíl mannsins.
Ökumaðurinn, sem er 17 ára, var einn í bílnum, en hann var í kjölfarið fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Talið er að meiðsli hans séu minni háttar. Ekki er ljóst hvað hinum unga ökumanni gekk til, en hans bíður nú yfirheyrsla hjá lögreglu. Tvær lögreglubifreiðanna eru óökuhæfar eftir eftirförina og sama á við um bíl piltsins.
Karlmaður um fertugt var síðdegis í gær í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umferðarslysi á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærmorgun.
Talið er að glæfralegu aksturslagi mannsins sé um að kenna, en tíu bílar skemmdust í slysinu og var ökumaður eins þeirra fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Maðurinn, sem er í haldi lögreglu, ók svartri Suzuki Swift bifreið, en nokkrar tilkynningar um háskalegt aksturslag hans bárust lögreglu skömmu fyrir slysið.
Minnt er á að lögreglan óskar eftir upplýsingum um bifreiðina, en þar er átt við myndskeið af ferð bílsins á Reykjanesbraut í aðdragana slyssins ef einhver kann að hafa slíkt undir höndum.
Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið rosa@lrh.is eða í síma 444 1000. Einnig er tekið við ábendingum í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu embættisins.