Costco býður nú upp á áfengissölu í netverslun sinni fyrir einstaklinga. Þetta kemur fram á heimasíðu verslunarinnar. Einstaklingar geta keypt áfengið í matvöruverslun Costco í gegnum vefverslun.
Kaupendur verða að stofna aðgang á síðunni til þess að panta áfengi hjá versluninni. Costco hefur um árabil selt áfengi til þeirra sem hafa vínveitingaleyfi en nú geta allir einstaklingar, tvítugir eða eldri, verslað áfengi á netinu.
Kaupendur panta áfengi á netinu en sækja það svo í vöruhús fyrirtækisins í Kauptúni. Kaupendur verða að framvísa persónuskilríkjum til að sýna fram á aldur sinn til að fá vörurnar afhentar, segir í tilkynningunni. Fram kemur að pantanirnar verði tilbúnar samdægurs hjá þeim en fyrirkomulagið kallast „click and collect“ á ensku eða smella og sækja.
Umræða