Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á Selfossi fyrr í vikunni en lögreglan á Suðurlandi greinir frá líkfundinum á Facebook-síðu sinni áðan:
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á bak við verslunarhúsnæði á Selfossi fyrr í vikunni. Ekki er talið að andlátið hafi orðið með saknæmum hætti. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi er með málið til rannsóknar. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið.
Umræða