Fram kom í Kastljósinu í gærkvöld að formenn stjórnarflokkanna séu sammála um að það þurfi að ljúka sölunni á Íslandsbanka, eða réttara sagt þau hlutabréf sem eftir eru í bankanum eftir síðasta útboð sem varð til þess að bankastóri og stjórn bankans urðu að segja af sér.
Í júní 2021 lýstu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson yfir mikilli ánægju sinni með einkavæðingu á Íslandsbanka.
Markmiðið með sölunni var sagt vera til að draga úr eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum og úr áhættunni við að eiga svona stóran hlut í fjármálakerfinu að sögn þeirra. En salan hefur verið harðlega gagnrýnd vegna þess að verið var að selja bankann á stórkostlegu undirverði. Þá sé það ekki á færi almennings almennt að kaupa dýr hlutabréf og hagnast þannig.
Þrátt fyrir að tvíeikið haldi því fram að fjölbreyttur hópur hafi keypt stóra hluti í bankanum eins og kemur fram í málflutningi þeirra, er um að ræða einsleitan hóp stóreignafólks sem var sérvalið sem kaupendur og fjárfestingasjóði, m.a. erlendis auk lífeyrissjóða sem voru kaupendur að hlutum þjóðarinnar í bankanum.