Skjálftavirkni á umbrotasvæðinu hefur verið stöðug síðan 11. nóvember. Um 900 skjálftar hafa mælst frá miðnætti í dag 13. nóvember. Skjálftavirknin er dreifð um suðurhluta gangsins á milli Sundhnúks og Grindavíkur á um 2-5 km dýpi.
Enn mælist hæg minnkandi aflögun við Grindavík. Gliðnun er mest við miðju gangsins við Sundhnúk þar sem megin uppstreymissvæði kviku er talið vera.
Það er mat Veðurstofunnar að virknin í og við Grindavík sé nánast óbreytt frá því í gær. Fylgst er gaumgæfilega með öllum mælakerfum í rauntíma, sér í lagi við Grindavík, sem gætu bent til breytinga á stöðunni.
Vakt Veðurstofunnar einbeitir sér sérstaklega að svæðinu í og við Grindavík og sinnir sérstakri vöktun viðbragðsaðila á staðnum sem sinna aðgerðum á staðnum.
Umræða