Lögreglan á Vestfjörðum:
Í gærkvöld var samband haft við íbúa húsa ofantil við Hjallaveg á Ísafirði og í einu húsi við Hnífsdalsveg að beiðni ofanflóðadeildar Veðurstofu Íslands.
Erindið var að fara þess á leit að íbúar húsanna dveldu ekki í herbergjum sem snéru með glugga upp að hlíð Eyrarfjalls.
Ekki er talin ástæða til að rýma húsin heldur er einungis um varúðarráðstöfun að ræða í því skyni að reyna að hámarka öryggi.
Með hliðsjón af þessu er eðlilegt að fólk sé ekki á ferð ofan við Hjallaveg, ofan við varnargarðan fyrir ofan bæinn eða í fjallshliðum almennt uns veðufar breytist. Þá er óheimilt að fara að aurskriðunum sem fallið hafa á veginum um Eyrarhlið, hvort sem það er akandi eða fótgangandi.
Umræða