• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisstjórnin leynir þjóðina upplýsingum um sölu á opinberum eignum sem seldar voru á slikk

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. desember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Ég hætti ekki fyrr en þessar upplýsingar liggja fyrir“ segir Þorsteinn Sæmundsson

Ríkisstjórnin leynir þjóðina upplýsingum um sölu á opinberum eignum fyrir slikk. Þingmaður Miðflokksins, Þorsteinn Sæmundsson hefur reynt í tvö ár, með sex fyrirspurnum á Alþingi og kæru til persónuverndar að fá upplýsingar um kaupendur en án árangurs. Þrátt fyrir að Persónuvernd úrskurðaði að heimilt væri að veita upplýsingarnar 

Þorsteinn Sæmundsson. þingmaður Miðflokksins  ,,Það liggur fyrir að 3.600 til 4.000 íbúðir Íbúðalánasjóðs voru seldar á 57 milljarða, eða 15 milljónir að meðaltali fyrir hverja fasteign og við fáum ekki að vita hverjir hinu heppnu voru sem að fengu þessar íbúðir.”

Þingmaðurinn Þorsteinn Sæmundsson hefur margreynt að knýja fram upplýsingar um hvað varð um þúsundir eigna Íbúðalánasjóðs. Ráðherra málaflokksins og framkvæmdavaldið verst og neitar að veita upplýsingar. ,,Ég hætti ekki fyrr en þessar upplýsingar liggja fyrir“ segir Þorsteinn Sæmundsson
„Á morgun, á næstsíðasta degi fyrir jólahlé þingsins, verður mánuður liðinn frá því að sá sem hér stendur lagði fram í sjötta sinn fyrirspurn um sölu á fullnustueignum Íbúðalánasjóðs. Svar hefur enn ekki borist. Eins og ég segi var þessi fyrirspurn þá lögð fram í sjötta sinn,“ sagði Þorsteinn í ræðustól þingsins.

Ráðherra leynir enn upplýsingum um hverjir fengu 3.600 til 4.000 íbúðarhús á 15 millj. kr. að meðaltali, þrátt fyrir leyfi Persónuverndar

Ásmundur Einar Daðason

„Hún hefur verið lögð fyrir félags- og barnamálaráðherra og nú er hún lögð fyrir dómsmálaráðherra. Þessir tveir ráðherrar hafa kosið að hunsa þingið gjörsamlega með því að svara ekki fyrirspurninni. Það er líklega eitt og hálft til tvö ár frá því að hún kom fram fyrst,“ sagði hann og bætti svo við: „Ég verð að segja, herra forseti, að þetta er algjörlega ólíðandi framkoma framkvæmdarvaldsins gagnvart Alþingi. Ég heiti á forseta að sjá til þess að þessari fyrirspurn verði svarað áður en þingið fer í jólaleyfi og að hún týnist ekki í jólabókaflóðinu. Þess vegna legg ég svo á og mæli um við forseta og bið hann um liðsinni enn einu sinni að hann hjálpi til við að þessari fyrirspurn verði svarað.“
Steingrímur J. Sigfússon þingforseti svaraði eftir ræðu Þorsteins Sæmundssonar : „Er þá ekki rétt, háttvirtur þingmaður, að við upplýsum að þetta mál á sér orðið langa sögu? Forseti og forsætisnefnd hafa lagt sitt af mörkum, samanber umfjöllun okkar um þetta í sumar, ítarlega greinargerð sem lagaskrifstofa þingsins tók saman og bréf sem voru í framhaldi send viðkomandi ráðuneytum þar sem tekið er nokkuð afdráttarlaust af skarið um það að ráðuneytunum ber að svara fyrirspurninni. Ég tel að það megi til sanns vegar færa að forseti og forsætisnefnd hafi lagt háttvirtum þingmanni verulegt lið í þessu máli. Ég er jafn áhugasamur um að sjá svörin koma frá ráðuneytunum og hver annar í ljósi þeirrar vinnu sem þingið hefur lagt í að gera alveg skýr mörk í máli af þessu tagi. Þar er að sjálfsögðu staðinn vörður um þann mikilvæga rétt sem þingmenn hafa til að afla upplýsinga með fyrirspurnum.“
https://gamli.frettatiminn.is/2019/04/15/radherra-leynir-enn-upplysingum-um-hverjir-fengu-3-600-ibudarhus-thratt-fyrir-leyfi-personuverndar/
https://gamli.frettatiminn.is/2019/06/11/rangar-upplysingar-um-naudungarsolur-og-mikil-leynd-yfir-tugthusund-seldra-rikiseigna/

Umræða
Share3Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    157 deilingar
    Share 63 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    103 deilingar
    Share 41 Tweet 26
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?