Veðurhorfur á landinu
Breytileg átt 5-10 og él á stöku stað. Frost 3 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Gengur í austan 10-18 í dag með snjókomu, fyrst suðvestantil og hlýnar. Slydda eða rigning sunnantil síðdegis. Snýst í suðvestan 8-13 með skúrum eða éljum um landið suðvestanvert í kvöld, en annars norðaustan og austan 13-20 og snjókoma, hvassast á annesjum. Norðaustan 15-23 um landið norðvestanvert á morgun, en 5-13 sunnan- og austantil. Víða él og frost 1 til 7 stig, en sums staðar frostlaust við suðurströndina. Norðan 10-18 annað kvöld og kólnar í veðri, él fyrir norðan, en léttir til um landið sunnanvert.
Spá gerð: 14.01.2019 04:59. Gildir til: 15.01.2019 00:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Vaxandi austanátt og stöku él, 10-15 eftir hádegi og snjókoma, en slydda síðdegis og hlýnar. Snýst í suðvestan 8-13 undir kvöld með slydduéljum. Fremur hæg austlæg átt í fyrramálið og þurrt að kalla, en norðaustan 8-15 annað kvöld og léttir til. Kólnandi veður.
Spá gerð: 14.01.2019 05:02. Gildir til: 15.01.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Austan og norðaustan 8-15 m/s, en 15-20 norðvestantil. Víða snjókoma eða él, en dregur úr vindi og ofankomu um kvöldið. Frost 0 til 9 stig, mildast syðst.
Á miðvikudag:
Norðlæg átt 5-13 og stöku él, en bjartviðri um landið sunnanvert. Frost 3 til 15 stig, kaldast inn til landsins.
Á fimmtudag:
Austlæg eða breytileg átt. Stöku él og talsvert frost norðantil, en snjókoma með köflum sunnantil og frost 0 til 5 stig.
Á föstudag:
Gengur í allhvassa suðaustanátt, slydda eða rigning sunnan- og vestantil um kvöldið og hlýnar, en annars þurrt að mestu og minnkandi frost.
Á laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir suðvestanátt með éljum. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 13.01.2019 20:06. Gildir til: 20.01.2019 12:00.
Hugleiðingar veðurfræðings
Skil nálgast landið úr suðvestri með vaxandi austanátt í dag, snjókomu og versnandi skyggni. Hlýnandi veður. Hlánar sunnantil síðdegis með slyddu eða rigningu. Norðaustan hvassviðri í kvöld, en mun hægari suðvestanátt með slydduéljum um landið suðvestanvert. Norðaustan hvassviðri eða stormur norðvestantil á morgun, en mun hægari vindur sunnan- og austanlands. Víða él og frost 0 til 7 stig. Ákveðin norðanátt annað kvöld og él norðantil, en léttir til fyrir sunnan.
Spá gerð: 14.01.2019 06:32. Gildir til: 15.01.2019 00:00.