• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Veðrið heldur áfram að versna og nær bráðlega hámarki

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Víðáttumikil 934 mb lægð er nú stödd 500 km suður af Reykjanesi, og samskil frá henni liggja að landinu. Núþegar hefur hvesst um sunnanvert landið, víða rok eða ofsavefður og fárviðri á nokkrum stöðum. Mesti vindur, enn sem komið er, sem hefur mælst eru 40 m/s á Þyrli, innst í Hvalfirði, og 45 m/s á Stórhöfða en á síðarnefnda staðnum hefur einnig verið úrkomumest, 38 mm.
Veðrið heldur áfram að versna og nær bráðlega hámarki sunnantil á landinu, en með morgninum heldur áfram að hvessa nyrðra. Rauðar eða appelsínugular viðvaranir eru í gildi í öllum landshlutum. Fjöldi eldinga hafa mælst handan skilana, og á Suðausturlandi eru líkur á að það verði vart við eldingar þegar að skilin ganga yfir.
Illviðrið gengur svo niður eftir hádegi, og á miðnætti rennur síðasta gula viðvörunin út. Á morgun nálgast svo næsta lægð, hún er raunar enn dýpri en lægð dagsins í dag. Lægðin í dag ýtir hinsvegar hæðinni yfir Grænlandi lengra til norðurs og veður þrýstibrattinn yfir landinu, og þar með vindstyrkur, ekki jafnmikill og í dag. Reiknað er með að gefa út viðvaranir vegna lægðarinnar á morgun síðdegis í dag, þegar að núverandi veður byrjar að ganga niður.
Spá gerð: 14.02.2020 06:50. Gildir til: 15.02.2020 00:00.
https://gamli.frettatiminn.is/raud-vidvorun-austan-ofsavedur-hofudborgarsvaedid-sudurland-faxafloi-og-sudausturland/
Veðurhorfur á landinu
Austan rok eða ofsaveður (23-30 m/s), en fárviðri (yfir 32 m/s) í vindstrengjum á suðurhelmingi landsins. Víða slydda eða snjókoma, úrkomumest sunnan- og austanlands.
Snýst í sunnan hvassviðri sunnantil landinu seinnipartinn með rigningu á láglendi og hita 1 til 5 stig, en þá áfram rok og ofankoma um landið norðanvert.
Lægir talsvert á landinu í kvöld og dregur úr úrkomu.
Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s á morgun, en 20-25 um tíma syðst á landinu. Rigning eða slydda um landið sunnan- og austanvert. Þurrt norðan- og vestanlands framan af degi, en dálítil úrkoma þar seinnipartinn. Hiti 1 til 6 stig.
Spá gerð: 14.02.2020 06:59. Gildir til: 15.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Austlæg átt 3-10 og skýjað austanlands og dálítil él með suðurströndinni, en léttskýjað á vestanverðu landinu. Vaxandi norðaustanátt síðdegis, 10-18 um kvöldið með snjókomu norðantil. Frost 0 til 6 stig.
Á mánudag:
Norðanátt og él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnantil. Frost 1 til 7 stig.
Á þriðjudag:
Fremur hæg suðlæg átt með éljum sunnan- og vestanlands, en léttir til um landið norðan- og austanvert. Frost 0 til 9 stig, kaldast norðanlands.
Á miðvikudag:
Vaxandi austlæg átt með snjókomu eða slyddu sunnanlands, en þurrt og kalt norðantil á landinu.
Á fimmtudag:
Austlæg átt með rigningu, slyddu eða snjókomu. Vestlægari um kvöldið og úrkomulítið. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 14.02.2020 07:42. Gildir til: 21.02.2020 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    180 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?