• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Fimmtudagur, 21. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Lögreglan fær hrós fyrir góð störf

ritstjorn by ritstjorn
14. mars 2020
in Fréttir, Innlent
0

Lögreglustöðin við Hverfisgötu

Share on FacebookShare on Twitter

Lögreglan stóð í ströngu í vikunni og oft fær hún skammir en stundum hrós, og nefnir það á vef sínum af hógværð:

,,Alla daga fær lögreglan viðbrögð frá fólki við þeim verkefnum sem hún sinnir. Þau eru auðvitað allskonar, stundum ekki prenthæf en langoftast bara jákvæð. Dæmi um það síðarnefnda er tölvupóstur sem lögreglustjóranum okkar barst í vikunni eftir að steypubíl var stolið í miðborginni og honum veitt eftirför. Sendandinn, sem gaf góðfúslega leyfi sitt fyrir birtingu póstsins, var einn margra sjónarvotta að eftirförinni.
Sæl Sigríður,
Ég starfa í turninum í Höfðatorgi og horfði á eftirförina í gær eftir Sæbrautinni.
Það er ótrúlegt hversu fagmannlega þitt fólk stóð að þessu. Lögreglubílarnir virtust mynda nokkurskonar spíss utan um steypubílinn, þrátt fyrir að hann hafi verið á ofsahraða, væntanlega með það að markmiði að vernda umferðina. Það leit út fyrir að lögreglubílarnir hafi stýrt steypubílnum frá umferðinni á móti. Það virtist vera mikil samhæfing í hvernig lögreglubílarnir brugðust við, sem hlýtur að endurspegla góða þjálfun og hæfa lögreglumenn, því þetta gerðist auðvitað mjög hratt.
Ég gat ekki séð annað, en það sé þínu fólki að þakka, að ekki hafi orðið stórslys.
Væntanlega fær lögreglan oft kvartanir og í því ljósi langaði mig að senda þér stutta línu því þið eigið mikið hrós skilið fyrir þessi faglegu viðbrögð.

Bestu kveðjur,
xxxxxx“
https://gamli.frettatiminn.is/a-flotta-undan-logreglunni-a-steypubil-mikil-haetta-skapadist-i-midbaenum/

  • Bubbi er ósáttur

    Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Ef þetta er rétt vantar um 20 milljarða í íslenskt hagkerfi á hverju ári“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Reyndist ekki vera leiðindaskarfur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mikilvægum áfanga náð í undirbúningi Sundabrautar

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?