• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglan hefur aukið eftirlit með farsímanotkun ökumanna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Eins og kunnugt er tók ný reglugerð um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot  gildi 1. maí fyrir tæpu ári síðan. Fram að því höfðu sektir fyrir umferðarlagabrot verið óbreyttar í rúm tíu ár. Mörgum fannst þær of lágar og hafa lítinn fælingarmátt. Sektir við umferðarlagabrotum eru til þess fallnar að veita ökumönnum aukið aðhald og stuðla þannig um leið að auknu umferðaröryggi.
Til dæmis um hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot fór sektin fyrir notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur úr 5.000 krónum í 40.000 krónur. Ölvun við akstur (hæstu sektir, vínandamagn í blóði 2,01 eða meira), fór úr 240.00 krónum í 320.000 krónur.
Þvert á það sem búist hafði verið við hefur umferðarlagabrotum fjölgað til muna samkvæmt bráðabirgðatölum frá ríkislögreglustjóra. Umferðarlagabrotum fjölgaði um átta þúsund í fyrra miðað við árið á undan, þrátt fyrir miklar hækkanir. Alls voru 78 þúsund umferðarlagabrot skráð í fyrra og fjölgaði þeim um 12% frá árinu 2017. Langflest voru fyrir hraðakstur, rúmlega 61 þúsund og fjölgaði þeim um 11%. Flest mál komu jafnframt  til vegna stafrænna hraðamyndavéla.
Umferðarlagabrotum fjölgar í flestum landshlutum, mismikið þó. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði þeim um hátt í sex þúsund, eða 15% í fyrra, 32% á Suðurnesjum og 90% á Vesturlandi. Mesta breytingin er á Norðurlandi vestra, úr ríflega 3.000 brotum í um 7.500, sem er 145% aukning. Þar var ráðist í átak í byrjun síðasta árs og sinntu tveir lögreglumenn nær eingöngu umferðareftirliti.
Guðbrandur Sigurðsson, aðal­varðstjóri um­ferðardeild­ar hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, segir að í umræðunni um þessi mál verði að hafa í huga að umferð hafi aukist gríðarlega. Hingað koma 2,3 milljónir erlendra ferðamanna á hverju ári og þannig er ekki óeðlilegt við að umferðarlagabrotum fjölgi. Þá mætti einnig benda á að sjálfum löggæslumyndavélum hefur fjölgað.
Vonuðum að fælingarmáttur hærri sekta væri slíkur að brotunum myndi fækka
„Lögreglan vinnur að umferðareftirliti eins og hún getur hverju sinni. Við sjáum ekki í fljótu bragði að mannskapur okkar eða tími hafi aukist þannig að við séum í rauninni að auka eftirlit okkar. Afskipti okkar eru fleiri og því má segja að dugur ungra lögreglumanna hafi ekki dalað. Fjölgun umferðarlaga brota má einkum rekja til aukinnar umferðar erlendra ferðamanna. Auðvitað vorum við að vona að fælingarmáttur hærri sekta væri slíkur að brotunum myndi fækka. Fólk þarf að fá hækkuðu sektina til að átta sig á því að það þarf að breyta hegðun eða mynstri sínu,“ sagði Guðbrandur.
Hann sagði að stundum mætti ætla að sumir ferðamenn sem hingað koma hefðu ekki mikla reynslu af akstri, einkum í snjó eða ísingu. Þeir væru ekki allir til fyrirmyndar, hvaða ástæða sem er fyrir því. Maður myndi ætla að margir ferðamenn sem hingað koma eigi ekki eða noti sjaldan bíl en ferðist jafnan heima fyrir með almenningssamgöngum . Hingað koma því óvanir ökumenn, taka bílaleigubíl og eru hreinlega óvanir akstri, ekki síst við íslenskar aðstæður.
Guðbrandur sagði að frá 1. maí í fyrra, þegar nýju lögin tóku gildi og til síðustu áramóta, hafi lögreglan kært hátt í 900 ökumenn fyrir að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar. Lögreglan hefur aukið eftirlit sitt með farsímanotkun ökumanna því að sérlega mikil hætta  þykir stafa af henni.
Margir standa sig með prýði
„Við viljum þó alls ekki vera einungis með neikvæðan áróður enda standa margir ökumenn sig með prýði og þessi söngur um að allir séu að tala í farsíma við akstur og að enginn gefi stefnuljós er að okkar viti ekki rétt. Kannski gefa of fáir stefnumerki en heilt yfir standa flestir ökumenn sig vel. Margir ökumenn sýna ábyrgð, tillitsemi og mér finnst það hafa aukist. Hægt og bítandi eru íslenskir ökumenn að læra,“ sagði Guðbrandur Sigurðsson, aðal­varðstjóri um­ferðardeild­ar hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, í spjalli við FÍB-blaðið sem nýkomið er út.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    212 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?