„Við erum vissulega að fylgjast með einhverju sem gæti verið undanfari eldgoss,” segir Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands í viðtali við rúv.is. Jarðskjálfti af stærðinni 4,8 mældist laust fyrir klukkan 17 í dag og fannst víða um land.
„Það hefur verið mjög mikil skjálftavirkni á öllum Reykjanesskaganum núna síðustu daga og í maí höfum við talið hátt í 4000 skjálfta sem hafa orðið á öllum Reykjanesskaganum frá því í upphafi mánaðar og margir skjálftar yfir þremur að stærð. Þannig að við erum á tímabili núna þar sem skjálftavirkni er mjög mikil,” segir Kristín.
Mun gjósa í nágrenni við Bláa Lónið?
„Við erum að horfa upp á atburðarás núna þar sem er mikil virkni á stóru svæði í gangi. Við teljum að það sé kvikusöfnun á miklu dýpi við Fagradalsfjall, á 16 kílómetra dýpi. En svo er líklega grynnri virkni við Svartsengi og þar hefur líka verið mjög mikil skjálftavirkni undanfarna daga. Þessi skjálfti er svo miklu lengra í burtu þannig að almennt séð er mikil virkni í gangi á öllum Reykjanesskaganum. Við þurfum bara að vera undir það búin að það geta komið fleiri skjálftar.” Segir Kristín í viðtali við rúv.is
https://gamli.frettatiminn.is/14/05/2022/snarpur-jardskjalfti-fanst-a-hofudborgarsvaedinu/