Landsvirkjun hyggst selja fyrrum höfuðstöðvar sínar að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík, að því er fram kemur í tilkynningu.
Félagið hefur verið þar til húsa í tæplega hálfa öld. Um helmingur byggingarinnar, alls 4.500 fermetrar, eru í eigu Landsvirkjunar.
„Orkufyrirtæki þjóðarinnar hefur ekki verið þar til húsa frá því að mygla greindist í húsnæðinu síðla árs 2022 og hefur nú komið sér fyrir að Katrínartúni 2,“ segir í tilkynningunni.
Síðar á árinu komi í ljós hvar nýjar höfuðstöðvar verði. Ekki hafi verið tekin ákvörðun hvort það húsnæði verði leigt, keypt eða byggt frá grunni.
Umræða