Kröfubréfið er stílað á fimm ráðuneyti; Forsætis-, Atvinnuvega- og nýsköpunar-, Dómsmála-, Félagsmála- og Fjármála- og efnahagsráðuneytin
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar krefst þess að ríkið greiði félagsmönnum Eflingar hundruði milljóna vegna aðgerðaleysis stjórnvalda vegna ógreiddra launa, launaþjófnaðar og ýmiss annars athæfis atvinnurekenda. Standi ríkisstjórnin ekki við loforð sín um að bæta aðstæður vinnandi fólks, áskilur Sólveig sér allan rétt til að knýja á um að svo verði.
,,Vissuð þið að á ári hverju er hundruðum milljóna stolið af félagsfólki Eflingar; vangoldin laun, orlof, desemberuppbót, orlofsuppbót og svo framvegis sem fólk á inni fyrir sína unnu vinnu látið hverfa í vasa atvinnurekandans?Vissuð þið að það er ekki refsivert á Íslandi að stela launum af vinnuaflinu? Vissuð þið að eitt af loforðum stjórnvalda vegna hins svokallaða Lífskjarasamnings var að „Heimildir til refsinga verði auknar, í samráði við aðila vinnumarkaðarins, ef atvinnurekandi brýtur gegn lágmarkskjörum launamanns“?
Vissuð þið að ekkert bólar á því að þetta loforð verði uppfyllt?
Vissuð þið að ekkert bólar á því að þetta loforð verði uppfyllt?
Vegna þessa ákvað ég að gera kröfu á stjórnvöld, til að deila hér á Facebook. Hún er uppsett eins og hefðbundin krafa frá félaginu, en héðan eru sendar hundruðir slíkra krafna á ári hverju fyrir hönd félagsfólks Eflingar. Á síðasta ári einu fóru frá okkur 700 kröfur upp á meira en 345 milljónir króna (og svo eru verkalýðsfélög um allt land sem eru líka að senda út endalaust af kröfum fyrir sitt fólk). Ég stíla kröfuna á Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Félagsmálaráðuneytið, Atvinnu og nýsköpunarráðuneytið og Fjármálaráðuneytið.“ Segir Sólveig Anna.

Umræða