Aðili á stolinni bifreið var handtekinn í morgun, en í bifreiðinni fannst ætlað þýfi ásamt fjármunum sem talið er að sé úr innbrotum sem framin voru í nótt. Var aðilinn færður í fangageymslu og verður yfirheyrður þegar hann verður skýrsluhæfur.
Í Breiðholti kvaðst hundaeigandi hafa orðið fyrir árás manns, sem hefði sparkað bæði í hann sjálfan sem og hundana sem viðkomandi var með meðferðis. Að sögn hundaeigandans hafði maðurinn í fyrstu gert athugasemdir við að einn af hundunum væri að spræna í blómabeð við hús hans, en þær aðfinnslur enduðu með þessum hætti. Lögregla rannsakar málið sem líkamsárás ásamt broti á dýraverndunarlöggjöf.
Í austurbæ Reykjavíkur varð eldur laus í uppþvottavél, en húsráðandi náði að slökkva eldinn með handslökkvitæki áður en viðbragðsaðilar mættu á staðinn. Rétt er að benda á að þótt handslökkvitæki megi sín lítils gegn miklum eldi eru þau gríðarlega gagnleg gegn eldi á byrjunarstigi og getur beiting þeirra þannig komið í veg fyrir stórtjón. Til þess að svo megi vera þurfa þau hins vegar að vera til staðar og vera í lagi, fyrir vikið er nauðsynlegt að láta yfirfara tækin reglulega.
Síðdegis var tilkynnt um mjög ógnandi aðila á Austurvelli að veitast að fólki. Var viðkomandi handtekinn og vistaður í fangageymslu, hvar honum gefst ráðrúm til að hugsa ráð sitt á meðan af honum rennur mesta áfengisvíman. Viðkomandi verður í kjölfarið kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt