Árið 2020 fengu eigendur útgerðarfyrirtækja fjórum sinnum meiri arð af nýtingu sjávarauðlindarinnar heldur en skilaði sér til almennings í formi veiðigjalda. Þessi óréttláta skipting auðlindarentunnar stafar af því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hunsar kröfuna um virka þjóðareign auðlinda og viðheldur kerfi þar sem fiskveiðiheimildum er úthlutað langt undir markaðsverði.
Meirihlutanum til örfárra fyrirtækja og fjölskyldna sem raka til sín æ stærri hlutdeild kvótans sem gengur svo milli kynslóða eins og hjá aðalsfólki í Jane Austen-bók. Þessi samþjöppun auðs magnast enn frekar upp þegar skattkerfið hyglar þeim tekju- og eignamestu á kostnað venjulegs launafólks.
Við höfum ekki efni á þessu auðmannadekri. Stórútgerðirnar geta greitt miklu meira í sameiginlega sjóði án þess að rekstrargrundvelli þeirra sé raskað. Næg eru sameiginlegu verkefnin sem þarf að fjármagna og nægar eru brotalamirnar í almannaþjónustu og velferðarkerfinu sem þarf að laga. Hysjum upp um okkur buxurnar.
https://gamli.frettatiminn.is/13/03/2021/born-theirra-erfa-svo-audlindina-og-milljardana/
Umræða