Fiskifræðingur fann fjöldi eldislaxa á stuttum kafla í Haukadalsá í Dölunum við Breiðafjörð í nótt eftir að tilkynnt var um að slíkur lax hafði veiðst. Hann segir stöðuna alvarlega.
Fjallað er ítarlega um málið hjá ríkisútvarpinu og þar segir: ,,Eldislax veiddist í ánni í gær, veiðimennirnir áttuðu sig ekki á gerð fisksins, deildu mynd af honum á samfélagsmiðlum og slepptu honum svo. Strax var brugðist við, Stangveiðifélag Reykjavíkur sem er með ána á leigu, sendi Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðing á vettvang og var hann við rannsóknir og veiðar í ánni í nótt.
„Niðurstaðan sýndi að þetta var allt eins og við var að búast: það er að segja það er gjarnan þannig að þar sem er einn eldislax eru þeir gjarnan fleiri. Það reyndist vera málið, því miður. Þetta kemur ekkert á óvart en það er alltaf óspennandi að fá þessa gesti í árnar,“ segir Jóhannes.
Hann var við athuganir sínar frá miðnætti og fram á nótt á um 100 metra kafla í ánni og í einum hyl.
„Það voru þarna klárlega eldislaxar. Svo voru þarna einhverjir sem maður tók sýni af sem maður veit ekki hvorum megin eru. Þetta leit illa út. Við skulum bara segja það hreint út. Þetta leit afskaplega illa út. Við fyrstu sýn myndi maður segja að það gætu auðveldlega verið tugir eldislaxa í ánni ef maður leyfir sér að framreikna þetta. Og í versta falli gætu verið hundruðir eldislaxa í ánni.“

