,,Hvað mundi fólk segja ef lögreglan legði ákveðna stjórnmálamenn í einelti eins og fréttastofa RÚV gerir gagnvart Sigmundi Davíð ?“
RÚV hefur á undanförnum mánuðum verið harðlega gagnrýnt af almenningi fyrir að leggja Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins í einelti og hafa þær raddir orðið háværari og fleiri að undanförnu.
Þá fór ekki framhjá neinum að RÚV gegndi forystuhlutverki í því að blása hið svokallaða Klaustursmál upp og halda því gangandi með óteljandi ,,ekki fréttum“, í marga mánuði. Elstu menn muna ekki slíkar ofsóknir af hálfu ríkisfjölmiðilsins sem er mjög pólitískur. En á að vera hlutlaus og hafa það hlutverk að upplýsa almenning en ekki standa í pólitískum áróðri fyrir stjórnarflokkana eins og RÚV er daglega sakað um.
Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og f.v. þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur í dag stigið fram og lýsir sinni skoðun:
,,Fréttastofa RÚV leggur Sigmund Davíð Gunnlaugsson greinilega í einelti. Í gær sló fréttastofan nýtt met í tilraun til sönnunarfærslu um að Sigmundur hefði farið með fleipur eitt í loftslagsmmálum, þegar hann vitnaði í forstjóra alþjóða veðurfræðistofnunarinnar.
Tilraunin endaði raunar úti á túni, en söm var þeirra gerð. Miðað við ummæli forstjórans hefði frekar verið tilefni til að taka fyrir ummæli forsætisráðherra og fá hana í viðtal, en hennar líka, sem boða hamfarahlýnun skilgreinir forstjórinn sem öfgafólk í loftslagsmálum. Hvað mundi fólk segja ef lögreglan legði ákveðna stjórnmálamenn í einelti eins og fréttastofa RÚV gerir gagnvart Sigmundi Davíð. Mundi fólk sætta sig við það. En er frekar hægt að sætta sig við það að fréttastofa RÚV geri það?“ Segir Jón Magnússon en grein hans hefur farið eins og eldur í sinu um internetið:
Pólitískt einelti RÚV gagnvart Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni
Sá sem þetta ritar er ekki stuðningsmaður Sigmundar Davíðs og hefur aldrei verið en það breytir því ekki að málefnalega hefur Sigmundur Davíð oft borið af í pólitískri umræðu og verið óhræddur við að taka fyrir málefni sem eru andstæð hugmyndum samræmdra skoðana meginstefnu stjórnmálamanna og fjölmiðla. Þessvegna telur fréttastofa RÚV sér skylt að leggja þennan stjórnmálamann í pólitískt einelti. Svona skoðanir eru skaðlegar, þegar kemur að þeim pólitísku trúarbrögðum, sem einkennir um margt fréttaveituna sbr. t.d. málefni ólöglegra innflytjenda og meinta hamfarahlýnun.
Í gær setti þessi fréttastofa nýtt met í furðulegheitum og tilraunum til að koma höggi á stjórnmálamann:
Fyrir nokkrum dögum varaði Petteri Taalas yfirmaður alþjóða veðurfræðistofnunanarinnar (WMO)við öfgafólki í umræðunni um loftslagsmál. Hann nefndi sem dæmi sænska unglinginn Gretu Thunberg, Al Gore o.fl. sem segja að hamfarahlýnun sé í gangi. Hann hefði eins getað nefn Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands. Það skiptir RÚV engu máli. RÚV fannst engin ástæða til að minnast á, að Katrín Jakobsdóttir er í þeim hópi, sem Taalas skilgreinir í umfjöllun sinni sem öfgafólk í loftlagsmálum. Af einhverjum ástæðum fór það alveg framhjá fréttaveitunni.
Eftir að sótt hafði verið að Taalas þá birti hann viðbótaryfirlýsingu þar sem segir að hann styðji loftslagsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og hann telji að hluti af hlýnun undanfarinna ára sé af mannavöldum. Þessi yfirlýsing varð tilefni til þess, að RÚV birti frétt, þar sem vísað var til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði í raun farið með fleipur eitt þegar hann í þingræðu vísaði til ummæla Taalas.
Fréttastofan gekk svo langt að spyrja Taalas beint að því hvort að þessi málflutningur Sigmundar væri ekki algjör afbökun á því sem hann hefði sagt. Taalas gerði sér greinilega grein fyrir því hverskonar viðundur í líki fréttafólks það voru sem spurðu með þessum hætti og svaraði af hógværð, að hann fylgdist ekki náið með umræðum á Alþingi.
,,Þessi vinnubrögð eru vægast sagt ógeðfelld í lýðræðisríki, þar sem þessi fréttaveita er kostuð af skattfé landsmanna og ber skv. lögum að gæta hlutlægrar framsetningar á fréttum.“
Í frétt RÚV er samt sem áður látið að því liggja að Sigmundur Davíð hafi snúið út úr orðum Taalas og farið með fleipur í eldhúsdagsræðu sinni á Alþingi.
Skoðum það nánar:
Taalas sagði m.a.að veðurfræðingar væru alvöru vísindamenn og væru orðnir þreyttir á dómsdagsspámönnum í loftslagsmálum eins og Gretu Thunberg og Al Gore og hann nefndi fleiri til. Ef svo hefði viljað til að hann hefði fylgst með umræðum á Alþingi þá hefði hann vafalaut bætt Katrínu Jakobsdóttur við. Þessu til viðbótar sagði hann að spár væru túlkaðar til að þjóna þeiri bókstafstrú sem öfgafólkið aðhylltist og spár og útreikningar varðandi loftslagshlýnun væru ekki nógu nákvæmar.
Allt það sem Taalas sagði hefði því átt að vera efni í frétt hlutlægrar fréttastofu um það, að umræðan um loftslagsmál væri orðin öfgakennd og röng og gera grein fyrir því hvers vegna þessi vísindamaður lýsir því yfir. Jafnvel að fá Katrínu Jakobsdóttur í viðtal vegna ummæla Taalas. En nei það passaði ekki inn í pólitíska öfgatrú forsvarsmanna fréttastofunnar. Þess í stað var reynt að koma höggi á pólitískan andstæðing fréttastofunnar, Sigmund Davíð Gunnlaugsson fyrir það eitt að greina frá ummælum Taalas.
Þessi vinnubrögð eru vægast sagt ógeðfelld í lýðræðisríki, þar sem þessi fréttaveita er kostuð af skattfé landsmanna og ber skv. lögum að gæta hlutlægrar framsetningar á fréttum.
Hvað mundi fólk segja ef lögreglan mundi haga sér með svipuðum hætti gagnvart borgurum þessa lands, að leggja suma stjórnmálamenn í einelti eins og fréttastofa RÚV gerir?
https://gamli.frettatiminn.is/2019/02/03/frettastofa-ruv-hafdi-samband-vid-helstu-studningsadila-midflokksins/