Tilkynning frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra og almannavörnum
Aðstæður í Hleiðargarðsfjalli ofan við bæinn Gilsá 2 í Eyjafirði, þar sem skriða féll þann 6. október, voru metnar í gær af sérfræðingum Náttúrufræðistofnunar Íslands og Veðurstofu Íslands. Í dag funduðu aðilar frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Náttúrufræðistofnun Íslands og Veðurstofa Íslands ásamt ábúendum á Gilsá 1 og Gilsá 2 um stöðuna.
Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu sem var í gildi fyrir ofangreinda bæi auk sumarbústaðar við Gilsá 2.
Aðstæður eru metnar þannig að eftir mikinn snjóavetur og leysingar sumarsins er líklegt að óvenju mikið vatn hafi safnast fyrir í urðinni sem hafi valdið háum grunnvatnsþrýstingi og átt þátt í því að hluti urðarinnar í Hleiðargarðsfjalli rann fram.
Engar merkjanlegar breytingar hafa orðið í eða við skriðusárið síðan á föstudag. Áhættan á svæðinu hefur minnkað en þó má búast við því að laust efni geti fallið á svæðinu. Ábúendur hafa verið upplýstir um stöðuna. Veðurstofan Íslands mun fylgjast áfram með svæðinu næstu daga þrátt fyrir að rýmingu hafi verið aflétt.