„Árás á vísindamenn Hafrannsóknastofnunar“
Landssamband veiðifélaga gerir alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, til breytinga á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem sambandið hefur sent frá sér. Segir í henni að drögin séu gjörbreytt frá því frumvarpi sem lagt hafi verið fyrir síðasta vorþing, og að í þeim felist brot á samkomulagi sem náðst hafi í starfshópi ráðherra um stefnumörkun í fiskeldi.
„Með nýju ákvæði um svokallaðan samráðsvettvang eru leikmenn að meirihluta settir þar til höfuðs vísindamönnum Hafrannsóknarstofnunar og skal vettvangurinn leggja mat á vísindastörf þeirra með álitsgerð á áhættumati erfðablöndunar. Þá er ráðherra gefið vald til að hafa vísindalegar niðurstöður að engu sýnist honum svo,“ segir í tilkynningunni.
Þessi ákvæði brjóti gegn skýrum ákvæðum náttúruverndarlaga um meðferð stjórnvalda á vísindalegum niðurstöðum. Sambandið segist mótmæla þessum hugmyndum ráðherra harðlega í innsendri umsögn um frumvarpsdrögin og segir þær „árás á vísindamenn Hafrannsóknastofnunar“.
Í greinargerð sem fylgir frumvarpsdrögunum sé því ranglega haldið fram að meginefni þess byggi á tillögum starfshóps um stefnumörkun í fiskeldi sem allir nefndarmenn hafi samþykkt með sérstakri undirritaðri yfirlýsingu
Segir í umsögninni að verði það frumvarp sem hér er til umfjöllunar óbreytt að lögum er verið að efna til stórfelldra átaka stjórnvalda og löggjafans við þá sem gæta hagsmuna veiðiréttareigenda að lögum. Í því samhengi má minna á að tekjur af stangveiði er ein meginstoð landbúnaðar á Íslandi.
Þegar landið er tekið í heild eru tekjur af stangveiði 28 prósent af hagnaði og launakostnaði í landbúnaði. Hæst er hlutfallið á Vesturlandi þar sem þessar tekjur af stangveiði eru 69% af hagnaði og launakostnaði í landbúnaði, og næst hæst á Austurlandi þar sem það er 34 prósent.
Landssamband veiðfélaga lagði til í umsögn sinni að gjald fyrri framleiðsluheimildir á frjóum fiski yrði að lágmarki tvöfaldað en gjald fyrir framleiðslu á ófrjóum fiski eða framleiðslu í lokuðum kerfum félli niður. Þannig yrði gjaldið til að hvetja til umhverfisvænna framleiðsluhátta.
Í tilkynningu segir að frumvarpsdrögin séu „veruleg tilslökun fiskeldinu til handa frá því frumvarpi sem ríkisstjórnin lagði fram síðastliðið vor og í engu samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um vernd lífríkisins.“ Og að drögin séu gjörbreytt frá því frumvarpi sem upprunalega var lagt fram á vorþingi árið 2018 og sé þannig brot á því samkomulagi sem náðist í starfshópi ráðherra um stefnumörkun í fiskeldi. Þar segir að með nýju ákvæði í frumvarpinu um „svokallaðan samráðsvettvang eru leikmenn að meirihluta settir þar til höfuðs vísindamönnum Hafrannsóknarstofnunar og skal vettvangurinn leggja mat á vísindastörf þeirra með álitsgerð á áhættumati erfðablöndunar.“
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/01/14/umsogn-svfr-vegna-breytinga-a-fiskeldisloggjofinni-mengandi-idnadur/