,,Hægir vindar framan af degi, en vestankaldi á Norður- og Austurlandi seinni partinn. Él víða um land, en bjartviðri norðaustan til og áfram talsvert frost. Á morgun fer vindur vaxandi að austan og þykknar upp. Um kvöldið er komið hvassviðri, jafn vel stormur syðst og dálítil snjókoma eða slydda fyrir sunnan og austan og rigning við ströndina, en hægari og lengst af úrkomulaust norðvestanlands. Hlýnar heldur á morgun og hlánar sunnan og austan til seinni partinn. Á sunnudag snýst í hvassa norðaustanáatt með snjókomu eða éljagangi og kólnandi veður.“ Segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Veðurhorfur á landinu
Hæg suðlæg eða breytileg átt og dálítil él víða um landi, bjart með köflum á N- og A-landi. Snýst í vestan 5-13 m/s N- og A-lands síðdegis, en annars hægari og dálítil él á víð og dreif. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum nyrðra.
Vaxandi austanátt og þykknar upp á morgun, 15-23 um kvöldið og slydda eða snjókoma S- og A-til, en rigning við sjóinn, annars hægara og þurrt að kalla. Hlýnar í veðri og hiti 0 til 5 stig syðst og austast annað kvöld.
Spá gerð: 15.02.2019 04:45. Gildir til: 16.02.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Norðaustan og austan 13-18, en 18-23 m/s NV-til. Snjókoma norðan heiða, annars rigning eða slydda með köflum. Frost 0 til 6 stig, en hiti 0 til 5 stig S-lands. Norðlægari um kvöldið styttir upp á S-verðu landinu og kólnar.
Á mánudag:
Allhvöss norðanátt með snjókomu eða éljum, en bjartviðri syðra. Frost 0 til 8 stig. Dregur úr vindi og ofankomu um kvöldið.
Á þriðjudag:
Austlæg átt, skýjað og stöku él við S- og A-ströndina. Hvessir SV-til á landinu seinni partinn. Frost 0 til 7 stig, en hiti 0 til 5 stig við S-ströndina.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Suðaustanátt og vætusamt, einkum S-til á landinu. Hlýnandi veður.
Spá gerð: 15.02.2019 08:13. Gildir til: 22.02.2019 12:00.