,,Eflingarfélagar hafa ekki fengið launahækkun sem nemur 78.600 kr. á mánuði líkt og annað verkafólk í SGS. Það eru samtals 107 dagar síðan samningur SA og Eflingar rann út og því nemur uppsafnað tap vegna skorts á afturvirkni samtals 276.500 kr.“ Segir á vef SA.
„Miðlunartillagan liggur enn fyrir og það er lögbundin skylda samningsaðila að atkvæði séu greidd um hana. Niðurstaða Landsréttar, að sáttasemjari geti ekki krafist afhendingar kjörskrár til að annast sjálfur atkvæðagreiðslu, breytir ekki þeirri lagalegu skyldu samningsaðila. Efling boðar frekari verkföll í stað þess að virða ákvæði vinnulöggjafarinnar.“ – segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Ljóst er að Efling hefur hindrað framgang lögmætrar miðlunartillögu samkvæmt úrskurði Landsréttar fyrr í dag. Landsréttur hafnaði þar kröfu ríkissáttasemjara í innsetningarmáli embættisins gegn Eflingu um að fá afhenda kjörskrá félagsins vegna miðlunartillögu sem ríkissáttasemjari setti fram. Vísar Landsréttur í lögskýringargögn frá 1996 þar sem komi fram að ekki sé vilji löggjafans að veita ríkissáttasemjara þau völd að geta krafið stéttarfélag um kjörskrá, en ASÍ hafði mótmælt slíkum hugmyndum að þvi er fram kemur hjá SA.
Efling og ríkissáttasemjari gerðu samkomulag fyrir helgi sem kveður á um að aðfararbeiðni embættisins með aðstoð sýslumanns væri frestað þangað til niðurstaða Landsréttar væri ljós. Að sama skapi gekkst Efling undir það að afhenda kjörskrána strax í kjölfar úrskurðarins ef niðurstaðan væri sáttasemjara í hag. Þá skuldbundu báðir aðilar sig til þess að una úrskurði Landsréttar og verður hann því ekki kærður til Hæstaréttar.
Núverandi verkfallahrina mun halda áfram að öllu óbreyttu.
Allar upplýsingar á vinnumarkaðsvef
Á vinnumarkaðsvef má kynna sér samning SGS sem liggur til grundvallar miðlunartillögu Ríkissáttasemjara sem og svör við algengum spurningum um verkföll.
Ef frekari spurningar vakna eru félagsmenn hvattir til að hafa samband við lögmenn vinnumarkaðssviðs SA.
Samningur – Verkafólk SGS (án Eflingar)
Tilboð SA til Eflingar á pólsku – Oferta kontraktu SA dla Eflingu
Fjöldi kjarasamninga undirritaðir
Að undanförnu hefur verið gengið frá fjölda sérkjarasamninga og fyrirtækjaþátta kjarasamninga eftir stefnumarkandi kjarasamningum SA við stéttarfélög á almennum vinnumarkaði; Brú að bættum lífskjörum. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins geta nálgast kjarasamningana og leiðbeiningar um þá hér á vinnumarkaðsvef samtakanna.
,,Eflingarfélagar hafa ekki fengið launahækkun sem nemur 78.600 kr. á mánuði líkt og annað verkafólk í SGS. Það eru samtals 107 dagar síðan samningur SA og Eflingar rann út og því nemur uppsafnað tap vegna skorts á afturvirkni samtals 276.500 kr.“
https://www.sa.is/frettatengt/frettir/afturvirkniklukkan