• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 9. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Forseti Landsréttar : Í tilefni af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu

ritstjorn by ritstjorn
15. mars 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Þrír dómarar við Landsrétt munu ekki að svo stöddu taka þátt í dómstörfum Landsréttar eftir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta eru þau Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason og Jón Finnbjörnsson en fjórði dómarinn, Ragnheiður Bragadóttir, er í námsleyfi til 30.júní. Þeir halda launum sínum á meðan á þessu stendur. Skv. upplýsingum sem að birtust á síðu Landsréttar.

Sigríður Á Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra

En eins og kunnugt er, þá sagði Sigríður Á Andersen af sér embætti dómsmálaráðherra eftir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem að dæmdi verk fyrrum dómsmálaráðherra ólögleg og að vinnslan og málatilbúnaðurinn allur hefði verið svívirðilegur og án fordæma. Ljóst er að mikið verkefni er fyrir höndum vegna þess gríðarlega alvarlega ástands sem að hefur skapast í landinu þar sem að dómskerfið er allt í upplausn og í molum eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi verk fyrrum dómsmálaráðherra ólögleg varðandi ráðningar á dómurum ofl. í svokölluðu Landsréttarmáli.

Landsréttur lagði niður störf eftir að dómurinn barst hingað til lands frá Evrópudómstólnum en Sigríður Andersen vildi meina að lítið væri að marka niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem að sjö dómarar sitja og kváðu upp dóminn, sömu viðbrögð voru hjá henni einnig varðandi dóms Hæstaréttar.  Nú hefur forseti Landsréttar sent frá sér neðangreinda yfirlýsingu:

Mannréttindadómstóll Evrópu

Tilkynning frá forseta Landsréttar
Í tilefni af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi frá 12. mars síðastliðnum var á fundi dómara Landsréttar sama dag ákveðið að fresta öllum þinghöldum sem boðað hafði verið til í þessari viku.
Frá og með mánudeginum 18. mars næstkomandi mun Landsréttur starfa samkvæmt breyttri dagskrá sem birt verður á heimasíðu réttarins.
Eftirtaldir dómarar Landsréttar munu sinna dómstörfum:
Aðalsteinn E. Jónasson
Davíð Þór Björgvinsson
Hervör Þorvaldsdóttir
Ingveldur Einarsdóttir
Jóhannes Sigurðsson
Kristbjörg Stephensen
Oddný Mjöll Arnardóttir
Ragnheiður Harðardóttir
Sigurður Tómas Magnússon
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Þorgeir Ingi Njálsson
Landsréttardómararnir Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason og Jón Finnbjörnsson munu að svo stöddu ekki taka þátt í dómstörfum. Landsréttardómarinn Ragnheiður Bragadóttir er í námsleyfi frá 1. janúar til 30. júní 2019.
Kópavogi, 15. mars 2019.   Hervör Þorvaldsdóttir, forseti Landsréttar
https://www.fti.is/2019/03/13/sigridur-andersen-domsmalaradherra-segir-af-ser/
 

  • Laxeldisstöð sektuð um 21,6 milljón fyrir dýraníð

    Laxeldisstöð sektuð um 21,6 milljón fyrir dýraníð

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tálmunarofbeldi mæðra

    209 shares
    Share 209 Tweet 0
  • Dæmd fyrir að saka mann um nauðgun

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er alger klikkun – 500.000 krónur fyrir venjulegt fólk á ári“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?