Ákæra í máli bílaleigunnar Procar var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Haraldur Sveinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar, er einn ákærður. Hann játaði sök við rannsókn málsins en hann mætti ekki fyrir dóminn. Haraldur Sveinn er ákærður fyrir skjalafals og til vara fjársvik. RÚV greindi fyrst frá.
Procar málið snýst um það að snemma á árinu 2019 viðurkenndu forsvarsmenn bílaleiguunnar Procar að hafa skrúfað kerfisbundið niður kílómetrateljara í bílum sínum þegar þeir voru settir í sölu. Það gerður þeir í kjölfar útsendingar á fréttaskýringaþættinum Kveik þar sem fjallað var um þetta svikamál sem var mjög umfangsmikið. Þar kom í ljós að mikill fjöldi fólks hafði orðið fyrir barðinu á svikunum og þau staðið yfir árum saman. Embætti Héraðssaksóknara fékk málið inn á sín borð í byrjun sumars 2020.
Sex fara fram á bætur í málinu, meðal annars starfandi lögreglumaður á Vestfjörðum. Bæturnar sem fólkið fer fram á nema samtals 4,1 milljón króna. Verjandi Haraldar sagði Harald Svein ekki hafa átt heimangengt fyrir dóminn í morgun en að hann myndi vilja koma sem fyrst til að lýsa afstöðu sinni til ákæruefnisins.
Fram kemur í ákærunni að í kjölfar þess að málið kom upp hafi Procar fengið aðstoð lögfræðistofu til að bæta upp tjón vegna háttseminnar og leitað hafi verið til óháðs sérfræðings sem mat verðmætarýrnun bifreiðanna vegna fölsunarinnar.
Breytingin sem gerð var á bílunum var allt frá um tvö þúsund kílómetrum upp í 52.130 kílómetra, en breyting flestra bílanna er á bilinu 10 til 40 þúsund kílómetrar. Fram kemur í ákærunni að í kjölfar þess að málið kom upp hafi Procar fengið aðstoð lögfræðistofu til að bæta upp tjón vegna háttseminnar og leitað hafi verið til óháðs sérfræðings sem mat verðmætarýrnun bifreiðanna vegna fölsunarinnar.
Var tekin sú ákvörðun að reikna 40% ofan á hina útreiknuðu fjárhæð og bjóða sem bætur, en að lágmarki 50 þúsund krónur. Var metið tjón af niðurfærslunum samtals 10,1 milljón, en með 40% álagi var upphæðin 14,9 milljónir. Í ágúst í fyrra var búið að greiða bætur vegna 116 bifreiða að fjárhæð 13,3 milljónir, en óuppgert var vegna 18 bifreiða. Um 86% eru þegar búnir að semja vegna málsins
Meðal þeirra sem fengu greiddar bætur var Ergo fjármögnunarþjónusta, Landsbankinn, Sjóvá, Landsbankinn, Bílabúð Benna, nokkrar bílaleigur og fjöldi einstaklinga og nokkur önnur fyrirtæki.
Björn L. Bergsson, dómari í málinu, greindi frá því í þinghaldinu að Haraldur Sveinn hefði játað sök við rannsókn málsins og spurði verjanda hans hvort hann ætti von á því að sú afstaða breyttist. Nei, sagði verjandinn. Haraldur Sveinn myndi engu að síður ekki fallast á bótakröfurnar eins og þær væru settar fram. Hann væri engu að síður reiðubúinn til sátta.
Ólafur Þór Hauksson rakti ákæruna fyrir dómnum. Hann sagði Harald Svein ákærðan fyrir skjalafals en til vara fjársvik. Honum væri gefið að sök að hafa á árunum 2014 til 2018 falsað kílómetrastöðu í 134 bílum. Hann er sagður hafa fengið aðila til að breyta kílómetrastöðunni þannig að þeir gæfu ranglega til kynna að bílanir væru minna eknir og auðvelda væri auðveldara að selja þá.
Í ákærunni kemur fram að Haraldur Sveinn segist hafa fengið pólskan mann að nafni Pawel til að falsa með rafrænum hætti stöður á kílómetramælum í aksturstölvum. Í ákærunni kemur fram að búið sé að greiða bætur vegna 116 bíla upp á samtals 13,3 milljónir. Ekki sé búið að gera upp bætur vegna samtals 18 bíla þar sem áætlað tjón nemur 1,6 milljónum króna. FÍB hefur fjallað um málið á vef sínum.