Íslenska þjóðin sýndi hug sinn í verki á samfélagsmiðlum í gær með því að samgleðjast Gylfa Sigurðssyni og fjölskyldu hans með að máli hans væri lokið í réttarkerfinu í Bretlandi án ákæru. Málið tók um tvö ár í ítarlegri rannsókn lögreglu og ákæruvalds ytra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var einn þeirra fjölmörgu sem tjáði sig um málið og hér að neðan er færsla hans:
Þetta á ekki að geta gerst
Maður var handtekinn og svo settur í farbann og lá undir grun í nærri tvö ár. Aldrei kom fram nákvæmlega um hvað hann væri grunaður en það þó sett í flokk með einhverju versta afbroti sem fólk getur hugsað sér.
Maðurinn missti vinnu sína og ástríðu, andlit og nafn mannsins voru útmáð og drifið í að fjarlægja allar vörur sem tengdust honum á einhvern hátt úr verslunum.
Íslendingar urðu fyrir miklu áfalli, börn og unglingar landsins misstu eina helstu hetju sína. Landsliðið sem hafði unnið glæsta sigra, sem fylltu okkur stolti og gleði, lenti í uppnámi og náði ekki lengur þeim árangri sem vænst var.
Mánuð eftir mánuð var ekkert að frétta af málinu, maðurinn, fjölskylda hans og vinir máttu þola stöðuga bið við hræðilegar aðstæður. Þær aðstæður vörðu í nærri tvö ár!
Það er mikilvægt að réttarkerfið taki ásakanir föstum tökum en það er ómannúðlegt, bæði gagnvart ákærendum og sakborningum, að mál fái að dragast von úr viti. Ekki hvað síst þegar hinir grunuðu þurfa að þola mikla refsingu á meðan.
Því miður er þetta ekki bara raunin í Bretlandi. Á Íslandi hefur fólk mátt þola óforsvaranlega bið eftir niðurstöðu og oft verið álitið sekt í millitíðinni.
Vesturlönd þurfa að rifja upp grundvallarreglur réttarríkisins. Bæði hvað varðar meðferð mála og regluna sem áður var algild: Fólk telst saklaust þar til sekt er sönnuð.
https://gamli.frettatiminn.is/14/04/2023/gylfi-sigurdsson-laus-allra-mala-og-verdur-ekki-akaerdur/