Áfram held ég að segja frá „árangri“ vísindalegri stjórnun fiskveiða með aflakvótum í löndunum í kring um okkur. Hann er hörmulegur og í Norðursjó, einhverjum frjósömustu veiðislóðum á norðurhveli jarðar er þorskaflinn einungis um 5% af því sem hann var áður en farið var að stjórna honum.
Fullt af fiski sem ekki má veiða

Ég sá þetta með eigin augum 2003 og varð nokkur hvellur út af því þá en öldurnar lægði, engu var breitt, og nú erum við í því sama.
Enn er meint ofveiði á svæðinu en sjómenn eiga samt mjög erfitt að forðast þorskinn og sleppa miklu niður. Þetta er eins og hér heima, fullt af fiski sem ekki má veiða.
Framhald fiskveiðióstjórnar – „Ofveiðin“ í Norðursjó
Ég fór til Skotlands snemma árs 2003 til þess að skoða ofveiðina og smáfiskinn. Hafði frétt að þeir væri að skófla upp smáfiski, ungviði, sem væri ljótt.
Fyrsti viðkomustaður var Aberdeen þar sem fiskmarkaðurinn var heimsóttur. Þar var smáýsa í kössum sem var raðað um allt gólf. Ég tók eftir að við enda raðanna voru kassar með hrognum. Ég varð hissa þegar ég uppgötvaði að þetta voru hrogn úr smáýsunni, ýsu í síldarstærð og kynþroska.
Síðar, eftir að hafa farið í FN2013rannsóknarleiðangur með snurvoðarbát, Fruitful Harvest komst ég að því að þessi ýsa var 4 ára gömul. Skrifaði skýrslu þar sem ég sagði að Norðursjórinn væri vanveiddur, hún var send til ICES en hefur sennilega farið beint í tætarann því hún passaði ekki. Skýrslan
Nokkuð var gert úr þessu í fjölmiðlum á þessum tíma. Enn er allt við sama, enn er ofveiði þó sjómenn séu í vandræðum með að forðast þorskinn. Þorskaflinn nú er aðeins um 5% af því sem hann var áður en farið var að stjórna veiðunum með kvótum skv. vísindalegri ráðgjöf.
Drögum úr veiði og veiðum meira seinna!
Hafró hefur mistekist herfilega að auka aflann sem átti að verða, yrði farið að þeirra tillögum fyrir 40 árum, og erum við nú tæplega hálfdrættingar, aflinn er um 200 þús. tonn í stað þeirra 500 þús. sem lofað var.
Sú saga skal ekki rakin frekar en fróðlegt er að skoða hverju samsvarandi stefna hefur skilað í löndunum í kring um okkur. Árangurinn er vægast sagt ömurlegur.
Byrjum á Eystrasalti
Þar var 250-300 þús tonna veiði á tímabili stjórnleysis en hefur minnkað mjög og nú hefur verið lokað fyrir alla þorskveiði í 4 ár vegna bágs ástands þorskstofnsins og sagt er að það sé vegna ofveiði. Árið 2009 þegar Pólverjar voru að ganga í Evrópusambandið var mér boðið þangað á ráðstefnu til að segja frá reynslu Íslendinga af kvótakerfinu.
Til stóð að fækka skipum til að draga úr sókn og stækka möskva til að hlífa smáfiski, Þá spurði ég hvernig vöxtur fiskanna væri því ekki mætti minnka sókn nema fiskur yxi vel. Fékk ég það svar að þeir vissu það ekki, gætu ekki aldursgreint hann út frá kvörnum.
Leysti ég það mál með því að fá sent hreistur af þorski og reyndist það auðvelt að aldursgreina það. Sá að fiskurirnn var hægvaxta með vaxtarstöðnun við um 50 cm. Varaði ég þá sterklega við að draga úr sókn, þá gæti illa farið. Á það var ekki hlustað og endaði með lokun fyrir 4 árum.
Enn halda menn þar eystra að þetta hafi verið ofveiði sem drap þorskinn. Nýjustu fréttir eru að þeir séu farnir að ala þorsk í eldisstöðvum til að sleppa hinum út á gaddinn.
Skýrslur mínar og nánari lýsingar má finna hér:
https://fiski.com/eystrasalt.html
Næst verður haldið í Norðursjó, þar sem ástandið er litlu betra