• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Heimilt að opna sundlaugar og baðstaði 18. maí, með ákveðnum skilyrðum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. maí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að heimila opnun sundlauga og baðstaða 18. maí næstkomandi. Fjöldi sundgesta verður takmarkaður og rík áhersla lögð á hreinlæti og sóttvarnir. Auglýsing sem kveður á um heimildina hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar ásamt ýtarlegum leiðbeiningum sóttvarnalæknis.
Fjöldi gesta verður miðaður við starfsleyfi viðkomandi laugar eða baðstaðar og er reglan sú að gestir mega aldrei vera fleiri en nemur helmingi hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Börn fædd árið 2015 eða síðar teljast ekki með í gestafjölda.
Heimildin tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem það á við, sbr. reglugerð umhverfis- og auðlindaráðuneytis um baðstaði í náttúrunni. Líkt og bent er á í leiðbeiningum sóttvarnalæknis er baðvatn á baðstöðum í náttúrunni ekki sótthreinsað líkt og á sund- og baðstöðum og er fólki með undirliggjandi sjúkdóma því ráðlagt að varast slík böð.
Tveggja metra nálægðarmörk gilda ekki á sundlaugarsvæðum en mælst er til þess að fólk taki mið af þeim eins og kostur er.
Upplýsingar um COVID-19 verða felldar inn í fræðslu til allra starfsmanna fund- og baðstaða þar sem fjallað verður um veiruna sem veldur COVID-19 og eftirtalin atriði:

  • Helstu smitleiðir veirunnar á milli manna.
  • Það sem hægt er að gera til að varna því að smit berist á milli manna á sund- og baðstöðum.
  • Fyrstu viðbrögð starfsmanna ef grunur vaknar um smit innan vinnustaðar.
  • Leiðbeiningar um það ferli sem fer í gang þegar upp kemur COVID-19 smit.
  • Leiðbeiningar til framlínustarfsmanna í atvinnulífinu.
  • Hvar hægt er að finna frekari upplýsingar um COVID-19.

Eins og segir í leiðbeiningum sóttvarnalæknis er áhersla lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og minnt er á að við erum öll almannavarnir.

  • Leiðbeiningar sóttvarnalæknis fyrir sund- og baðstaði og baðstaði í náttúrunni vegna COVID-19
  • Minnisblað sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra um opnun sundlauga og baðstaða með takmörkunum
  • www.covid.is
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?