Nú grenjar stórútgerðin yfir því að þurfa að greiða fyrir þá þjónustu sem þjóðin hefur greitt fyrir hana síðustu 40 ár, en íslenskur sjávarútvegur er sá eini í heiminum sem er ríkisstyrktur og hefur verið s.l. fjóra áratugi.
Vegna þess að veiðigjöldin hafa ekki hrokkið fyrir kostnaði sem þjóðin hefur sjálf niðurgreitt með sköttum til þjónustuaðila við stórútgerðina.

Það er talað um það af ríkisstjórninni að ríkið fái þriðjung af hagnaði í svokölluðum veiðigjöldum. Það er bara alls ekki rétt! Þegar búið er að draga frá kostnað ríkisins vegna ríkisstyrkja til sjávarútvegsins, þá er þetta bara einn sjötti (1/6) eða 16.6% en ekki 33,3% eins og verið er að reyna að segja þjóðinni.
16.6% af hagnaði sjávarútvegsfyrirtækja er stofninn í veiðigjöldum en fyrirtækin nota allar bókhaldsleiðir sem hægt er til þess að hagnaður verði sem minnstur til þess að losna við að borga smánarlega lága fjárhæð til að komast til móts við kostnað vegna ríkisstyrkja.
SFS hefur hótað ríkinu öllu illu og m.a. því að segja upp fólki og flytja bara fiskinn óunninn úr landi. Ríkið á að bregðast við þessu strax og setja 40% toll á allan fisk sem er fluttur út óunninn með einu pennastriki. Það þarf að mæta þessu endalausa ofbeldi og hótunum, ,,með illu skal illt út reka“ stendur í elstu bókinni. Þá má ekki gleyma því að ,,þeirra maður“ Kristján Þór Júlíusson, ráðherra sjálfstæðisflokksins, lækkaði veiðigjöldin niður úr öllu valdi áður en hann varð að hrökklast úr embætti, eftir að þjóðin fékk að vita frá uppljóstrara í Namíbíusvindlinu, að þar var úlfur í sauðargæru.
Verðlagsstofa skiptaverðs er ríkisstofnun sem er staðsett á Akureyri og heyrir undir Matvælaráðuneytið. Hlutverk hennar er að fylgjast með fiskverði og tryggja rétt og eðlilegt uppgjör á aflahlut sjómanna, í samræmi við lög. Nú er ljóst að þessi stofnun hefur kostað sjómenn og þjóðina alla, hundruði milljarða og er það tjón óbætanlegt. Hví var þessi stofnun ekki bara deild hjá Fiskistofu? Þoldi starfsemin ekki dagsljósið? Hví er hún staðsett í Mekka stórútgerðarinnar?
Það á að leggja þessa stofnun niður enda er hún óþörf og hefur alltaf verið og miða á verð á öllum fiski við markaðsverð. Það er eina rétta verðið, annað er bara bull og skáldskapur hjá stofnun sem LÍÚ plantaði sínu fólki inn í. Svo er þetta líka mjög gott sparnaðarráð og fyrirbyggir allt svindl til framtíðar.
Uppblásnar afskriftir og ofurvextir lækka veiðigjöld um milljarða króna á ári