• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aukin tækifæri og jafnræði

Aukin tækifæri fylgja fjölbreytileika í nýsköpun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. júní 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Jafnræði í íslenskri nýsköpun með sérstakri áherslu á að auka hlut kvenna var yfirskrift vorfundar Tækniþróunarsjóðs sem fram fór í dag. Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja við rannsóknir og þróunarstarf sem miðar að nýsköpun í íslensku atvinnulífi og er hann opinn öllum atvinnugreinum. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem býður upp á fjölmarga styrktarflokka fyrir ólík verkefni sem geta verið á mismunandi stað í vaxtaferli fyrirtækja.

Leiðrétting kynjahalla forsenda árangurs

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flutti ávarp á fundinum í dag og lagði þar áherslu á mikilvægi þess að allir, óháð kyni, taki þátt og fái tækifæri í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi svo hugvitið endurspegli tækifæri íslensks samfélags þegar kemur að rannsóknum, þróun og nýsköpun.

Stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi er orðið víðfemt en misjafnt er hvernig kynin nýta sér þetta stuðningsnet. Sem dæmi um þetta nefndi ráðherra að árið 2021 var metár í sögu Tækniþróunarsjóðs, bæði hvað varðar heildarupphæð veittra styrkja og fjölda úthlutana. Eins og í öðrum öngum samfélagsins má þó sjá ójafnt hlutfall kynjanna í umsóknum og úthlutunum styrkja frá rannsókna- og þróunarsjóðum. Slíkur kynjahalli leynist víða í samfélaginu og virkar í allar áttir. Í háskólunum hallar á karlkyns nemendur á sviði menntavísinda og heilbrigðisgreina á meðan það vantar kvenkyns nemendur í raunvísindi. Slík misskipting endurspeglast ekki aðeins í úthlutunum styrkja úr sjóðum heldur einnig, og jafnvel enn betur, í atvinnulífinu seinna meir.

,,Í þeim mikilvægu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir í dag, hvort sem það er á sviði umhverfismála, heilbrigðismála eða í öðrum krefjandi og flóknum verkefnum er hugvitið og nýsköpun í lykilhlutverki,“ sagði ráðherra í ræðu sinni. ,,Til þess að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar er mikilvægt að allir taki þátt og hafi til þess jöfn tækifæri.“

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Rannsókn á andláti

    353 deilingar
    Share 141 Tweet 88
  • Lýst eftir Hlyni Gíslasyni

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?